Lýsing
Miklaborg Fasteignasala og Safír byggingar ehf. kynna nýjar glæsilegar eignir við Suðurlandsbraut og Grensásveg. Orkureiturinn er nýtt og glæsilegt íbúðahverfi við Laugardalinn. Sannkallaður sælureitur. Sérstök áhersla lögð á endurnýtingu orku og dagsbirtuvottaðar íbúðir. Rut Kára stýrir innanhúshönnun íbúða og leggur línurnar fyrir sameigninleg rými. Inngarðar að evrópskri fyrirmynd og líkamsræktarsalur í sameiginlegu rými á jarðhæð D hlutans. Einnig verður fjölbreytt þjónusta á jarðhæð eins og kaffihús og önnur hentug nærþjónusta sem auka á lífsgæði íbúa.
SAFÍR20 er ný lausn sem hjálpar þér að komast inn á fasteignamarkaðinn. Þú leggur fram a.m.k. 10% af kaupverði og SAFÍR20 leggur til allt að 20% á móti. Þannig auðveldar SAFÍR20 þér að standast greiðslumat fyrir 70% láni og eignast heimili.
Það gefur kaupendum tækifæri á að eignast íbúð fyrr, án þess að þurfa að safna fyrir hærri útborgun. Fjármögnun með SAFÍR20 hentar bæði fyrstu kaupendum og þeim sem vilja stækka eða minnka við sig.
Allar nánari upplýsingar veitir Móeiður lögg. fasteignasali í síma 8998278 eða moa@miklaborg.is
Nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala, sími: 899-8278, netfang: moa@miklaborg.is.
Íbúð 509 er 142,9 fm fjögurra herbergja íbúð á fimmtu hæð. Geymsla 16,4 fm og 8,8 fm svalir sem snúa í átt að inngarði. Innrétting Safír Harmonía. Eignin skiptist í forstofu með góðu skápaplássi. Hjónasvítu með sér baðherbergi, svefnherbergi, sér þvottahúsi og öðru baðherbergi. Skrifstofu eða sjónvarpsherbergi. Eldhús í alrými. Stofu og borðstofu. Íbúðin er afhent með raftækjum frá Siemens í eldhúsi og vönduðum innréttingum frá GKS. Íbúðir eru afhentar án megin gólfefna. Baðherbergi eru flísalögð.
Nýjar lausnir - betri hljóðvist
Hver íbúð er útbúin loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Allt loft sem fer í gegnum kerfið er síað og er því minna af svifryki og frjókornum í íbúðunum en ella.
Á byggingartíma er lögð áhersla á endurvinnslu byggingarefnis, jarðvegs og gróðurs á svæðinu. Skipulag reitsins er það fyrsta í Reykjavík sem vottað er af BREEAM vistvottunarkerfinu og hefur það fengið einkunina Excellent.
Allar íbúðir við Orkureitinn eru hannaðar til að hámarka nýtingu dagsbirtu og þar með auka vellíðan og stuðla að lífsgæðum íbúa.
Innréttingarþema þessarar íbúðar er: Safír Harmonía Litur: 2
Nánari upplýsingar veita:
Móeiður Svala Magnúsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899 8278 eða moa@miklaborg.is