Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Vista
raðhús

Helluland 16

108 Reykjavík

189.000.000 kr.

1.108.504 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2037811

Fasteignamat

148.500.000 kr.

Brunabótamat

97.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1968
svg
170,5 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Glæsilegt 170,5 fm raðhús á einni hæð við Helluland 16 í Fossvogi. Innbyggður bílskúr. Stórar og bjartar stofur með arni. Garður til suðurs með mjög stórri nýlegri timburverönd og heitum potti. Húsið stendur neðan götu og bílastæði eru fyrir framan húsið.

Bókið tíma fyrir skoðun hjá: Magnea S. Sverrisdóttir lg. fasteignasali s. 861 8511 magnea@eignamidlun.is og Sverrir Kristinsson lg. fasteignasali sverrir@eignamidlun.is


Nánari lýsing: 
Forstofa: Flísalögð forstofa með sérsmíðuðum skápum.
Hol: Rúmgott flísalagt hol sem tengir sama rými hússins. Mikil lofthæð er í holi.
Snyrting: Gengið er í snyrtingu frá forstofu. Gólf er flísalagt. Gluggi er á snyrtingu.
Stofa/borðstofa: Stórar og bjartar samliggjandi stofur til suðurs með stórum gluggum. Mjög fallegur arinn með drápuhlíðargrjóti er í stofum. Frá stofum er gengið út í garð til suðurs, þar er nýleg mjög stór timburverönd og heitur pottur. Geymsluskúr er í garði. 
Eldhús: Sérsmíðuð innrétting er í eldhúsi. Nýlegt helluborð. Háfur úr stáli. Stór borðkrókur er í eldhúsi. Gólf er flísalagt.
Þvottahús: Góð innrétting er í þvottahúsi með plássi fyrir þvottavél og þurrkara. Gólf er flísalagt. Bakinngangur er í þvottahúsi.
Búr: Búr er innaf þvottahúsi. Gólf er flísalagt. 
Hjónaherbergi (1): Rúmgott parketlagt hjónaherbergi með fataherbergi innaf. Nýlegt parket er í hjónaherbergi.
Fataherbergi: Fataherbergi er innaf hjónaherbergi. (Fataherbergi er herbergi samkvæmt teikningu.)
Herbergi (2): Mjög rúmgott flísalagt herbergi (Eru tvö herbergi samkvæmt teikningu væri auðvelt að breyta aftur).
Herbergi (3): Rúmgott flísalagt herbergi innaf holi. 
Baðherbergi: Á baðherbergi eru bakar og sturta. Góð innrétting. Gólf er flísalagt. Gluggi er á baðherbergi og mikil lofthæð.
Geymsluloft er yfir húsinu.

Framkvæmdir utanhúss: Járn á þaki (og pappi) var endurnýjað fyrir um þremur árum síðan. Gler í gluggum í stofum, holi og baðherbergi var endurnýjað fyrir um 10 árum síðan. Garður var standsettur árið 2021 og sett mjög stór timburverönd.

Glæsileg eign á eftirsóttum stað í Fossvogi. Örstutt í leikskóla og skóla. Í Fossvogsdalnum er fallegt útivistarsvæði með gönguleiðum.





 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

img
Sverrir Kristinsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Eignamiðlun
Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
img

Sverrir Kristinsson

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík

Sverrir Kristinsson

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík