Opið hús: Gerplustræti 2, 270 Mosfellsbær, Íbúð merkt: 01 02 07. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 14. apríl 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.
Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 101,6 m2, 4ra herbergja íbúð á 2.hæð í lyftuhúsi ásamt stæði í lokaðri bílageymslu við Gerplustræti 2 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 101,6 m2 þar af íbúð 93,0 m2 og geymsla 8,6 m2. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu. Stórar svalir í suðurátt. Frábær staðsetning, rétt við Helgafellsskóla. Stutt í almenningssamgöngur og vinsæl útivistarsvæði. Skv. upplýsingum frá seljanda er nýbúið að skipta um parketi og mála alrýmið.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Stofa/borðstofa er með harðparketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á rúmgóðar svalir í suðurátt.
Eldhús er með fallegri innréttingu. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, helluborð, háfur og vaskur. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu sem getur fylgt.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott herbergi með parketi á gólfi og stórum fataskáp.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er rúmgott og með góðri innréttingu, walk-in sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofni. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.
Geymsla er í kjallara. Er skráð 8,6 m2.
Bílastæði í lokaðri bílageymslu merkt B07 fylgir eigninni. Búið er að setja upp hleðslustöðvakerfi frá ON við stæðið.
Eigninni fylgir hlutdeild að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Verð kr. 80.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.