Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Álftahólar 2

111 Reykjavík

83.900.000 kr.

592.514 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2049056

Fasteignamat

75.900.000 kr.

Brunabótamat

58.970.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1973
svg
141,6 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
Opið hús: 15. apríl 2026 kl. 12:00 til 13:00

Opið hús: Álftahólar 2, 111 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 03. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 15. apríl 2026 milli kl. 12:00 og kl. 13:00.

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Vel skipulögð, björt og einstaklega vel um gengin fjögra til fimm herbergja íbúð ásamt bílskúr á annarri hæð í litlu fjölbýli við Álftahóla. Samtals er eignin skráð 141,6 fermetrar sem skiptist í 112 fermetra íbúð og 7,4 fermetra geymslu ásamt 22,2 fermetra bílskúr á jarðhæð. Eignin  er með stórum og björtum stofum og stórum svölum lokuðum að hálfu, rúmgóðu eldhúsi sem mætti opna til stofu, tvö til þrjú herbergi ásamt baðherbergi á sér gangi. Geymsla og bílskúr á jarðhæð. Frábær staðsetning í göngufæri við skóla, verslanir og sundlaug. Sömu eigendur frá upphafi. Gólfefni íbúðarinnar vekur sérstaka athygli.

Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.is sem einnig sýnir eignina.


Gengið er inn í íbúðina um snyrtilegan stigagang. Komið er inn í skála eða hol íbúðarinnar þar eldhús er til vinstri, opið í stofur til vinstri og gangur með herbergjum og baði til hægri. Stór skápur, sem nýtist sem forstofuskápur, er fremst á gangi næst holi.
Stofur eru stórar og bjartar, stórir gluggar til suðurs og gengið út á stórar svalir frá stofu. Rúmur helmingur svalanna er lokaður með vandaðri svalalokun og nýta eigendur svalirnar mikið þar sem útsýni er afbragðsgott.
Eldhús er til vinstri frá holi, hvít innrétting með grárri borðplötu og skápar til lofts, undirskápaljós og flísar á milli skápa, stállituð tæki og háfur yfir eldavél. Gluggi er til suðurs í enda eldhúss, borðkrókur innst. Samkvæmt teikningu skilur léttur veggur að stofu og borðstofu og mætti þess vegna opna eldhúsið inn í stofu og fá þannig enn stærra opið og bjart alrými.
Til hægri út holi er sem fyrr segir gangur þar sem er baðherbergi og tvö til þrjú herbergi. Baðið er með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, baðkari með sturtu, handklæðaofni og innréttingu undir vaski, flísar á gólfi og veggjum. Hjónaherbergi er stórt og rúmgott með fataskáp á heilum vegg. Annað herbergi rúmgott með skáp og tveimur gluggum, var áður tvö herbergi og auðvelt að breyta aftur í tvö herbergi. Mögulega mætti bæta við fjórða herberginu þar sem núna er borðstofa.
Íbúðin hefur verið í eigu sömu aðila frá upphafi og hefur fengið einstaklega góða umhirðu. Eignin lítur afar vel út að innan en á öllum gólfum eru vandaðar flísar.
Bílskúrinn er 22 fermetrar, staðsettur á jarðhæð við hlið inngangs í húsið, en dyrnar eru með gönguhurð og sjálfvirkum opnara. Bílastæði er fyrir framan skúrinn sem eigandi íbúðarinnar má nota.
Í kjallara er rúmgóð geymsla, og  þvottahús og hjólageymsla í sameign.
Að sögn seljanda hefur húsið fengið mjög gott viðhald og var farið í viðamiklar framkvæmdir á árunum 2025 og 2026 sem er lokið, þar á meðal:
  • Skipt um þak og ný klæðning undir.
  • Múrviðgerðir á vesturvegg hússins, kringum glugga og á jarðhæð.
  • Húsið málað allt nema þar sem klæðning er.
  • Skipt um  marga glugga og opnanleg fög.
  • Dren endurnýjað vestanmegin.
  • Nýjar þakrennur og niðurföll.
  • Klæðning undir svölum á fyrstu hæð.
Hér er um að ræða virkilega fallega og vel staðsetta eign þar sem stutt í alla almenna þjónustu, skóla og leikskóla, sundlaug og íþróttaaðstöðu. Matvöruverslun í göngufæri. Fallegar gönguleiðir eru í hverfinu. Eign sem vert er að skoða.

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is
 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík