Lýsing
Um er að ræða vel skipulagða og bjarta þriggja herbergja 88,4 fm endaíbúð á jarðhæð í nýlegu lyftu-fjölbýli á þessum vinsæla stað í Skarðshlíðinni.
Gluggar á þrjá vegu, timbur verönd til suð-austurs og er útgengt á hana úr eldhúsi.
Örstutt í skóla og leikskóla, íþróttar og útivistarsvæði.
ÍBÚÐ ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.
Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er 79.9 fm merkt 01-01-03 og geymsla er 8.5 fm, samtals 88.4 fm að stærð.
FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.
Upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@landmark.is
Íbúð skiptist í:
Forstofu/gang, baðherbergi, tvö svefnherbergi, eldhús og stofu/borðstofu í björtu alrými og sér geymsla í kjallara.
Rúmgóð endaíbúð á jarðhæð með gluggum á þrjá vegu og 16 fm sérafnotareit til suð-austurs.
Nánari lýsing:
Forstofugangur/hol með fataskáp.
Stofa/borðstofa er opið og bjart rými og innaf stofu er eldhús.
Í eldhúsi eru vandaðar innréttingar með efri og neðri skápum frá AXIS, vönduð tæki frá Ormsson, útgengt á timburverönd til suð-austurs úr eldhúsi og er 16.8 fm sérafnotareitur þar sem fylgir íbúð.
Tvö rúmgóð svefnherbergi með fataskápum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, snyrtileg innrétting undir vask með skápum og veggskápur, Walk-in sturtuklefi með glerskilrúmi, handklæðaofn, gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi.
Sérgeymsla í kjallara og sameiginleg hjólageymsla á jarðhæð.
Gólfefni:Harðparket og flísar á gólfum íbúðar.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat