Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Samúelsson
Andri Sigurðsson
Sveinn Eyland
Ingibjörg Agnes Jónsdóttir
Guðrún Diljá Lúðvíksdóttir
Monika Hjálmtýsdóttir
Júlíus Jóhannsson
Freyja Rúnarsdóttir
Jón Óskar Karlsson
Davíð Matthíasson
Erla Friðriksdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2002
svg
176,2 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 15. apríl 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Lágseyla 10, 260 Reykjanesbær. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 15. apríl 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Landmark fasteignamiðlun kynnir:

Einstaklega fallegt og mikið endurnýjað einbýlishús að Lágseylu 10. Eignin hefur einstakt útsýni út á hafið, 5 svefnherbergi, 2 baðherbergi, opið eldhús með eyju, rúmgóða stofu, bílskúr, forstofu, þvottahús, sólpalla, heitan pott og útigufu. Sólpallur að framan snýr í suður og útsýnispallur frá stofu sólesturmegin.

Frábær eign, einstök staðsetning með frábæru útsýni.

Nánari upplýsingar veita:
Þórarinn Thorarensen sölustjóri s. 770-0309 / th@landmark.is
Sveinn Eyland lögg. fast. s. 6 900 820 / sveinn@landmark.is

* Eignin hefur verið endurnýjuð að nánast öllu leiti að innan árið 2018, á afar smekklegan hátt eftir teikningum og hönnun Berglindar Berndsen, ásamt því að vera vel viðhaldin að utan. 
* Eldhúss- og baðherbergis innréttingar eru sérsmíðaðar af Aðalvík með veglegum granít borðplötum úr vönduðum dökkum við.
* Gólfefni eru vönduð frá Birgisson og innihurðar frá Ebson. 
* Loft hafa verið tekin niður með fallegri innfeldri lýsingu og skipt hefur verið um innihurðar.
* Baðherbergi hafa bæði verið endurnýjuð að fullu.
* Fjögur góð svefnherbergi eru í húsinu ásamt góðu svefnherbergi í hluta af bílskúr, gott geymsluloft er yfir húsinu.
* Góður sólpallur með trédekki og steyptum skjólvegg er að framanverðu húsinu, ásamt rúmgóðu bílaplani með snjóbræðslu. Að aftanverðu húsinu er stór sólpallur með heitum potti, gufubaði og stórbrotnu útsýni yfir hafið, einnig útigeymslur við hlið bílskúrs og við hlið saunu.
* Geymsluloft er yfir herbergisgangi
* Húsið er allt samtengt með Sonos hátölurum, hátalarar fylgja ekki.
* Þriggja fasa rafmagn tengt í gufu.
* Húsið er vel einangrað að sögn seljanda.
* Gott kerru/hjólhýsastæði við hlið hússins.

Ástand hússins er mjög gott og endurbætur sérlega vel heppnaðar.

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

LANDMARK fasteignamiðlun

LANDMARK fasteignamiðlun

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. júl. 2025
90.100.000 kr.
120.000.000 kr.
10101 m²
11.880 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
LANDMARK fasteignamiðlun

LANDMARK fasteignamiðlun

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
phone