Opið hús: Hverfisgata 92, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 05 02. Eignin verður sýnd laugardaginn 18. apríl 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00. - Bókið skoðun: Jason sími 7751515
Lýsing
Lýsing eignar:
Forstofa, mjög rúmgóð, parketlögð og með stórum fataskápum.
Gangur, parketlagður.
Barnaherbergi, rúmgott, parketlagt og með fataskápum.
Hjónaherbergi, mjög rúmgott, parketlagt og með stórum fataskápum.
Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, innrétting með kvartsteini á borðum, flísalögð sturta með sturtugleri, handklæðaofn og góðar innréttingar með stæðum fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Eldhús, opið við stofu, parketlagt og með mjög fallegum sérsmíðuðum innréttinum með innbyggðum ísskáp með frysti. Eyja með helluborði og hangandi háfi og góðum hirslum. Silestone kvartsteinn er á borðum innréttingar og eyju og vönduð tæki eru í eldhúsi, þ.m.t. uppþvottavél.
Borðstofa við eldhús er parketlögð með gólfsíðum gluggum og með útgengi á svalir til vesturs.
Setustofa, parketlögð og rúmgóð með gólfsíðum gluggum.
Í kjallara hússins eru: Sér bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu merkt B97 þar sem komið er möguleiki að bæta við rafhleðslustöð. Stæðið er vel staðsett og mjög stórt. Einungis nokkur skref eru frá stæðinu að lyftu
Sérgeymsla, sem er 7,7 fermetrar að stærð og er með aukinni lofthæð.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Húsin: Hverfisgata 92 er 24 íbúða bygging í þremur stigahúsum og skiptist í A, B og C hús. Á milli húsanna er skjólgóður inngarður sem er opinn á móti og suðri og vestri. Batteríið Arkitektar sáu um hönnun hússins. Gamli stíllinn sem einkennir miðbæinn hefur fengið að halda sér í bland við nútímalegar byggingar sem falla vel að heildarmynd miðborgarinnar. Húsin eru klædd með áli og því viðhaldslítið. Hljóðvistin uppfyllir ítrustu kröfur byggingareglugerðar.
.
Mjög góðar almenningssamgöngur eru í nágrenninu og eru innan við 5 mínútna gangur í Sundhöll Reykjavíkur, Bónus, bestu bakarí borgarinnar og helstu sérverslanir. Glæsileg og aðgengileg eign í hjarta miðborgarinnar.
Nánari upplýsingar veita:
Jason Kristinn Ólafsson, löggiltur fasteignasali, í síma 7751515 / jason@betristofan.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.