Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Holtagata 8 efri hæð

600 Akureyri

72.900.000 kr.

588.378 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2147690

Fasteignamat

57.300.000 kr.

Brunabótamat

59.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1942
svg
123,9 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Holtagata 8 - Björt og falleg hæð ásamt risi á góðum stað miðsvæðis á Akureyri - Stærð 123,9
Stutt í miðbæinn, sundlaug Akureyrar, grunnskóla sem og leikskóla.

*** Eignin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning***


Eignin skiptist með eftirfarandi hætti
Neðri hæð: forstofa, eldhús, stofa, borðstofa, herbergi og baðherbergi
Efri hæð: þrjú svefnherbergi, baðherbergi og hol.
Kjallari: sameiginlegt þvottahús og geymsla.

Neðri hæð: 
Forstofa: Harðparket á gólfi og fatahengi.
Eldhús: Harðparket á gólfi, ljós innrétting og ofn með helluborði. Úr eldhúsi er gengið niður í sameiginlegt þvottahús og geymslu.
Stofa/borðstofa: Rúmgóð og björt, harðparket á gólfi.
Svefnherbergi: Harðparket á gólfi og fataskápar.
Baðherbergi: Dúkur á gólfi og veggjum. Ljós innrétting, baðkar og handklæðaofn. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu.

Efri hæð:
Þrjú svefnherbergi eru í risinu öll rúmgóð, í einu herberginu er rúmgóður fataskápur. Í dag er eitt herbergið notað sem sjónvarpsherbergi og úr því er gengið út á svalir til austurs með mjög góðu útsýni. 
Hol er rúmgott og bjart með opnanlegum þakglugga. Upptekið loft er í risi. 
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja, sturtuklefi og innrétting. Tengi er fyrir þvottavél á baðherbergi. 

Annað:
- Efri hæð/ris byggt ofan á húsið 1996-1998.
- Góður sólpallur er við suðurenda hússins.
- Rúmgóðar svalir með útsýni í austur.
- Geymsluskúr á lóð.
- Skólplagnir endurnýjaðar 2001 og drenað nokkrum árum fyrr.
- Ekki er til eignaskiptasamningur um eignina. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
25. mar. 2025
52.400.000 kr.
66.500.000 kr.
10101 m²
6.584 kr.
31. maí. 2021
31.850.000 kr.
42.700.000 kr.
123.9 m²
344.633 kr.
29. maí. 2019
28.550.000 kr.
37.500.000 kr.
123.9 m²
302.663 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone