Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson
Sveinbjörn Rosen Guðlaugsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2009
svg
134,9 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

V-Gata 22, 806 Selfoss
 
Eignaland og Jens Magnús lgf. kynna í einkasölu V-Gata 22, 806 Selfoss. Glæsilegt sumarhús á fallegum stað við Þingvallavatn, byggt árið 2009. Eignin er alls 134,9 m² að stærð, þar af bílskúr 30,2 m², og stendur á stórri 4.246 m² eignarlóð alveg niður við vatnið. Húsið er með steyptri plötu og gólfhita í allri eigninni, sem tryggir notalegan hita allt árið. Yfirbyggður sólpallur umlykur húsið og býður upp á einstakt útsýni yfir Þingvallavatn og nærliggjandi náttúru. Á pallinum er baðhús með heitum potti og saunu. Að innan er húsið klætt hvíttuðum panel með parketi á gólfum, sem gefur hlýlegt og bjart yfirbragð. Alrýmið er rúmgott og opið, með kamínu sem eykur notalegheit. Eldhúsið er vel skipulagt með ljósri innréttingu. Eignin státar af þremur rúmgóðum svefnherbergjum og baðherbergi með útgengi á pall. Þetta er virkilega falleg eign á frábærum stað sem býður upp á friðsæld og nálægð við náttúruna á lokuðu sumarhúsasvæði. 

Allar nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is

Aðalrými húss
Aðalinngangur leiðir inn í rúmgott og bjart alrými með eldhúsi, stofu og svefnálmu.
Anddyri: Með parketi á gólfi og hvíttuðum panel á veggjum.
Alrými
Rúmgóð stofa og borðstofa með parketi á gólfi og hvíttuðum panel. Upptekin loft og loftabitarnir eru sýnilegir og gefa rýminu flottan karakter. Kamína er í stofu og stórir gluggar bjóða upp á mikla náttúrulýsingu og útsýni yfir Þingvallavatn. Útgengi er á sólpall.
Eldhús
Með ljósri innréttingu og góðu vinnuplássi. Parket er á gólfi og hvíttaður panel á veggjum. Opið inn í stofu.
Svefnherbergi I
Rúmgott herbergi með parketi á gólfi og hvíttuðum panel á veggjum. Er með fataskáp.
Svefnherbergi II
Rúmgott herbergi með parketi á gólfi og hvíttuðum panel á veggjum.
Svefnherbergi III
Rúmgott herbergi með parketi á gólfi og hvíttuðum panel á veggjum. Er með fataskáp.
Baðherbergi
Flísalagt gólf og veggir. Með sturtuklefa og útgengi á pall.
Bílskúr
Bílskúr er frístandandi, með gönguhurð og bílskúrshurð. Flísalagður með góðu vinnuborði í endanum.
Pallur
Pallurinn er mjög stór og vandaður umhverfis húsið. Gríðarlega fallegt útsýni er af pallinum. Við pallinn er baðhús með heitum potti og saunu. Útgengt er um hurð af baðherbergi í baðhúsið.

Virkilega falleg eign á frábærum stað.
Sjón er sögu ríkari.
 
Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson, sími 893-1984 eða magnus@eignaland.is
 

***Vegna mikillar sölu undanfarið get ég bætt við eignum á skrá***
***Kem og verðmet þína eign þér að kostnaðarlausu***
 
  
 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

img
Jens Magnús Jakobsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Eignaland
Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi - Eyrarvegur 37, 800 Selfossi
Eignaland

Eignaland

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi - Eyrarvegur 37, 800 Selfossi
phone
img

Jens Magnús Jakobsson

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi - Eyrarvegur 37, 800 Selfossi
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. ágú. 2025
57.350.000 kr.
91.000.000 kr.
10101 m²
9.009 kr.
10. feb. 2017
28.950.000 kr.
25.000.000 kr.
134.9 m²
185.322 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignaland

Eignaland

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi - Eyrarvegur 37, 800 Selfossi
phone

Jens Magnús Jakobsson

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi - Eyrarvegur 37, 800 Selfossi