Opið hús: Vesturberg 138, 111 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 02. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 21. apríl 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Öll helsta þjónusta er í göngufæri eins og verslanir, sund, skólar, heilsugæsla, íþróttir og útivistarsvæði. Samþykkt hefur verið að setja rafhleðslustöðvar á bílastæði við húsið og greiðir seljandi kostnað vegna þessa.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.
Samkvæmt HMS er eignin skráð 63,6 fm og þar af er geymsla skráð 5,1 fm.
Nánari lýsing:
Forstofuhol með innb. skáp og parket á gólfi.
Stofa/borðstofa er rúmgóð með parket á gólfi. Útgengt á stórar svalir og frábært útsýni yfir borgina.
Eldhús er opið úr holi og stofu, með fallegri innréttingu, flísar milli skápa, tengi fyrir uppþvottavél og parket á gólfi.
Svefnherbergi er mjög rúmgott með góðum skápum og parket á gólfi.
Baðherbergi með epoxy á gólfi og vegg að hluta, góða innréttingu, upphengt salerni og stóra "walk-in" sturtu.
Sérgeymsla íbúðar í sameign á jarðhæð.
Hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.
Sameiginlegt þvottahús á jarðhæð.
Framkvæmdir seinustu ára:
2010 Skipt um glugga á austurhlið - 2011 Austurhlið klædd - 2012 Norðurgafl klæddur
2014 Vesturhlið máluð og skipt um glugga og svalahurðir hjá þeim sem þess óskuðu, múrviðgerðir og nýjar plötur á svalir.
2017 Gluggar á austurhlið málaðir - 2019 Svalahandrið máluð - 2021 Skipt um þakjárn - 2025 Vesturhlið máluð.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.