Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurðsson
Vista
raðhús

Logafold 121

112 Reykjavík

139.500.000 kr.

699.950 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2042548

Fasteignamat

135.200.000 kr.

Brunabótamat

103.000.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1986
svg
199,3 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
Opið hús: 23. apríl 2026 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Logafold 121, 112 Reykjavík. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 23. apríl 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00. Vinsamlega tlk komu ykkar á gudny@heimaland.is eða í s. 8216610.

Lýsing

Fasteignasalan Heimaland ehf. og Guðný Guðm., lögg.fast. kynna eignina Logafold 121, 112 Reykjavík. Fallegt 199,3 fm vel viðhaldið bjart endaraðhús á tveim hæðum með fallegu útsýni í lokaðri götu í skjólsælu grónu hverfi. Örstutt í Foldaskóla og leikskóla. Fallegar aðgengilegar gönguleiðir í nágreninu.  Húsið skiptist í 5 svefnherbergi, 2 stofur, tvö baðherbergi, eldhús, þvottaherbergi og innbyggðan bílskúr. Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla og hiti í innkeyrslu.

Nánari upplýsingar veitir Guðný Guðmundsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8216610, tölvupóstur gudny@heimaland.is.

Íbúð:
Efri hæði:  Loft eru klædd með hvítkalkaðri eik. Eldhúsið er með útsýnisgluggum bæði frá vinnuaðstöðu og borðkróki. Vel með farin, sérsmíðuð eldri viðarinnrétting með ljósum eldhúsbekkjum, hönnuð til að veita góða vinnu tilhögun. Sér eldhús borðkrókur með útsýni. Bjart rúmgott þvottaherbergi er innaf eldhúsborðkróki með sérlega góðri vinnuaðstöðu. Hjónaherbergið er með fataskápum yfir heilan vegg og snýr inn í rólegan bakgarðinn. Baðherbergið er flísalagt á veggjum og á gólfi með opnanlegu fagi í glugga, hvítum vaski í ljósri innréttingu, hvítu baðkari og salerni. Stofan er stór þar sem gengið er út á stórar, fyrri hluta dags, svalir með fallegu útsýni. Breiður stigi liggur á milli hæðanna með stórum háum glugga og útgang á sólar eftirmiðdags verönd.
Neðri hæð: Sér forstofa með faraskáp og hengi. Lítið setuhol við opin stigann á efri hæðina. Fjögur herbergi, sjónvarpshol og baðherbergi með flisum á veggjum og gólfi, opnanlegu fagi í glugga, hvítum vaski í ljósri innréttingu og sturtubotni. Fordæmi í samskonar húsi þar sem sér íbúð hefur verið gerð á neðri hæðinni. Gólfefni eru flísar, dúkur, parket og nýlegt ljóst teppi á stiga milli hæðanna. Innihurðar oghandriði á stiga eru úr bæsaðri eik.
Bílskúr: er með frjarstýrðri opnun, vatni, glugga og inngang frá bakgarði. 

Hús: Steypt hús sem hefur fengið gott viðhald: Á síðasta ári var skipt um gler og glerlista í húsinu og nýr gluggi og útgangur settur á stigapalli út í garð. 2025 voru endurnýjaðir tveir ofnar í stofu og á baðherbergi á efri hæðinni, aðrir ofnar voru yfirfarðir. 2021 var þak endurnýjað og nýr þakkanntur settur á húsið.  2024 voru múrviðgerðir á svalahandriði á sólarsvölum á efri hæðinni og hraunaðar að utanverðu.

Lóð: Er með miklum fallegum gróðri að framan, til hliðar og bakatil. Sólpallur er bakatil og útsýnis svalir framantil. Innkeyrsla og aðgönguleið eru steinhellulagðar og hitaðar með affalli heita vatnsins frá húsinu. 

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá. 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun. 

www.heimaland.is,  Austurvegur 6, 800 Selfoss, Fasteignasalan Heimaland ehf.

Fasteignasalan Heimaland ehf.

Fasteignasalan Heimaland ehf.

Brúarstræti 2, 2.hæð - 800 Selfoss
Fasteignasalan Heimaland ehf.

Fasteignasalan Heimaland ehf.

Brúarstræti 2, 2.hæð - 800 Selfoss