Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björn Guðmundsson
Berglind Jónasardóttir
Greta Huld Mellado
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1982
svg
216,4 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Böggvisbraut 4

Glæsilegt og mjög vel skipulagt 7 herbergja einbýlishús á einni hæð með sambyggðum bílskúr á góðum stað á Dalvík. Eignin er samtals 216 fm. en þar af er bílskúr skráður 50,4 og garðskáli 13,7 fm.. 


Eignin skipist í forstofu, bakdyrainngang, stofu, eldhús, sjónvarpshol, 5 svefnherbergi, garðskála, þvottahús, tvö baðherbergi og bílskúr. 

Forstofa  er með flísar á gólfi og þar eru góðir fataskápar. 
Sjónvarpsstofa er rúmgóð með parket á gólfi. 
Stofa er björt með parket á gólfi. 
Garðskáli er með flísar á gólfi og gólfhita. 
Eldhús er með flísar á gólfi, hvítri upprunalegri innréttingu, nýleg bekkjarplata, borðkrók, bakaraofn í vinnuhæð og stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél. Mikið bekkjarpláss. 
Svefnherbergi eru fimm, öll með parket á gólfi, mjög góður fataskápur í hjónaherbergi og úr einu herbergjanna er innangengt í bílskúr. 
Baðherbergi er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf, bæði sturtuklefi og baðkar, opnanlegt fag og mjög góð innrétting og speglaskápar við vask. 
Bakdyrainngangur  er með flísar á gólfi og opnu fatahengi. Þar er einnig tengi svo hægt sé að útbúa þvottahús. 

Bílskúr er um 50 fm. en af því er hluti þvottahús og lítið baðherbergi inn af því með flísar á gólfi. Í þvottahúsi er stæði fyrir þvottavél og þurrkara og útgengt út á verönd hjá pottasvæði. Á baðherbergi er vaskur, salerni og sturtuklefi. Í bílskúr er bæði inngönguhurð og rafmagnsdrifin innkeyrsluhurð, gólf er ómálað. 

Á hellulagðri verönd sem snýr til suðvesturs er hitaveitupottur og er stýring fyrir hann í bílskúr. Úr sólskála er svo gengið út á timburverönd sem snýr til suðurs. 

Annað: 
-Þakkantur endurnýjaður eftir þörfum og sett á hann álklæðning 2025
-Skipt um glugga og útidyrahurðir 2022 og 2023
-Gluggar eru ál-timbur 
-Baðinnrétting síðan 2022
-Innihurðir síðan 2021
-Skipt um öryggi í töflu bæði fyrir hús og bílskúr í kringum 2020
-Stórt bílaplan með lokað hitakerfi í plani og stétt, útbúið 2018
-Húsið málað að utan 2017
-Óeinangraður um 15 fm. skúr á lóð síðan 2017, rafmagnsleið að honum en ekki dregið í
-Ljósleiðari 
-Glæsilegt og mikið endurnýjað hús á góðum stað á Dalvík


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
olafur@byggd.is
greta@byggd.is
bjorn@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Byggð fasteignasala

Byggð fasteignasala

Skipagata 16, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. mar. 2017
30.250.000 kr.
31.800.000 kr.
216.4 m²
146.950 kr.
8. maí. 2007
16.890.000 kr.
22.000.000 kr.
216.4 m²
101.664 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggð fasteignasala

Byggð fasteignasala

Skipagata 16, 600 Akureyri
phone