Opið hús: Reynimelur 90, 107 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 03 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 20. apríl 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofu.
Nánari lýsing:
Eldhús: nýlega uppgert með góðu vinnuplássi og borðkrók. Innréttingin er frá Ikea með quartz borðplötu frá Steinprýði, nýlegt helluborð og bakarofn frá Siemens.
Baðherbergi: baðkar með sturtuaðstöðu, flísar á gólfi og veggjum, skápar, vaskur og blöndunartæki var endurnýjað árið 2021.
Tvö svefnherbergi: bæði með skápum og harðparketi á gólfum.
Stofa: Er rúmgóð og björt með harðparketi á gólfum og stórum glugga til suðurs . Frá stofu er útgengt á stórar suðursvalir með frábæru útsýni.
Með íbúðinni fylgir 4,2 fm geymsla. Rúmgott sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi. Hjóla- og vagnageymsla með útgangi á lóð.
Sameiginlegur stór suður garður.
Eignin er staðsett í góðu og vinsælu hverfi í vesturbænum í Reykjavík. Stutt er í leikskóla- og grunnskóla, alla helstu þjónustu og verslanir, sundlaug, bakarí ofl.
Góð bílastæði eru við húsið.
Framkvæmdir húsfélags skv seljanda:
* 2014 voru skólplagnir undir húsi fóðraðar.
* 2015 voru skólplagnir endurnýjaðar frá húsi og út í götu. Sett snjóbræðsla í gangstétt og útitröppur.
* 2018-2019 var húsið múrviðgerð og málað og endurnýjað gler / gluggar að hluta.
*2025 tvær sameiginlega hleðslustöðvar fyrir húsið.
Framkvæmdir innan íbúðar skv. seljenda:
2021 var íbúðin tekin í gegn, nýtt harðparket frá birgisson á alla íbúðina, nýjir skápar í svefnherbergi, ný eldhúsinnrétting og tæki.
Nánari upplýsingar veitir Páll Þórólfsson , í síma 8939929, tölvupóstur pall@betristofan.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.