Lýsing
Væntanlegum kaupendum er bent á að skoða eignina vel og með fagmönnum.
Nánari lýsing:
Anddyri: Rúmgott anddyri þar sem búið að skipt út gluggum en frágangur á lofti og gólfefnum er eftir.
Hol: Hol þar sem gengt inn í svefnherbergi og stofu.
Stofa: Búið er að útbúa tvö svefnherbergi úr stofunni. Auðvelt er að taka niður veggina ig útbúa stóra stofu aftur.
Tvö svefnherbergi: Rómgóð herbergi.
Stigi: Góður stigi er upp á 2.hæð, Geymsla er undir stiga.
Baðherbergi: Baðherbergi með sturtuklefa og góðum glugga.
Eldhús: hvít innrétting með góðu skápaplássi. Eldhúsið er mjög rúmgott.
Þvottahús. Þvottahús er inn af eldhúsi.
Viðbygging milli bílskúrs og íbúðar rými: Rúmlega fokhelt rými.
Bílskúr: Veruleg þörf á endurnýjun.
2.hæð:
Í dag er rýmið allt opið, búið er að einangra að hluta. Gert er ráð fyrir tveimur til þremur herbergjum, baðherbergi og holi. Góðar svalir eru til suðurs. Efri hæðin er gott sem fokheld og þarfnast mikils frágang.
Bílskúr: Viðbygging er milli bílskúrs og íbúðarrýmis sem er nýtt sem þvottah´su og geymsla. Bílskúrinn er mjög illa á sig kominn og þarfnast algjörar endurnýjunar.
Hér er eign sem bíður upp á mikla möguleika. í fyrri sölumeðferð var talað um að gefið hafi verið leyfi fyrir byggingarreit á lóðinni. Verið er að kanna stöðuna og réttindin gagnvart því.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður