Tökum á móti gestum í bílakjallara Orkureitsins, sýningaríbúð á hæð 4.
Lýsing
Heimasíða Orkureitsins
Orkureitur - Suðurlandsbraut 40, íbúð 405 er 2-3ja herbergja 105,4 fm. Íbúðin er við Suðurlandsbraut og snýr í útsýnisátt til norðurs og einnig til suðurs inn í fallegan og skjólgóðan inngarð.
Flæði íbúðar:
Komið inní anddyri með góðum fataskápum.
Baðherbergi með sturtu.
Hjónasvíta með góðum fataskápum og sér baðherbergi.
Herbergi II er sjónvarpsrými á teikningu, en lítið mál að breyta í svefnherbergi.
Úr stofu er gengið út á svalir.
Eldhúsið er með stein á borðplötum. Glæsileg innrétting frá GKS með eyju. Safír Harmónía.
Alrými tengir saman eldhús, borðstofu og stofu og er með gólfsíðum gluggum til norðurs og fallegu útsýni.
Sérþvottahús íbúðar er rúmgott með góðri innréttingu.
Gólfsíðir gluggar og gólfhit ásamt loftskiptakerfi gefa aukin gæði.
Sérgeymsla er 9,1 fm.
Innréttingaþema er Safír Harmónía. Steinn á borðum. Vönduð eldhústæki frá Siemens, Elica og Bora.
Nánar um Orkureitinn:
Bjartar og vel hannaðar íbúðir. Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði.
Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús. Fyrsta áfanga (A-húsi) er lokið en áformað er að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið í lok árs 2027.
Nánari upplýsingar veita sérfræðingar Betri Stofunnar:
Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1515 - tölvupóstur: jason@betristofan.is
Guðbjörg Guðmundsdóttir , í síma 899-5533, tölvupóstur gudbjorg@betristofan.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.