Lýsing
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá íslands alls 47,6 fm.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Stofa björt með miklu útsýni og parket á gólfi. Útgangt er út á yfirbyggðar svalir með fallegu og miklu útsýni úr stofunni.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, eldavél, gert er ráð fyrir ísskáp inn í vegg og parket á gólfi.
Svefnherbergi með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað með innangengri sturtu, upphengdu salerni, skápur undir vask, upprunlegur speglaskápur, plötur á veggjum, tengi fyrir þvottavél og flísalagt gólf.
Öll sameign í húsinu er mjög snyrtileg og á jarðhæð er sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi.
Íbúðin hefur aðgang að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Staðsetningin er frábær þar sem stutt er í Laugardalinn, verslanir, skóla og leikskóla og stofnbrautir. Strætó biðstöð fyrir framan blokkina. Mjög gott aðgengi er að blokkinni ásamt nægum bílastæðum.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.