Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigríður Jónasdóttir
Vista
fjölbýlishús

Staðarbakki 4

109 Reykjavík

115.000.000 kr.

707.692 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2046867

Fasteignamat

103.450.000 kr.

Brunabótamat

85.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1973
svg
162,5 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 28. apríl 2026 kl. 17:30 til 18:00

Lýsing

Staðarbakki 4, Reykjavík - rúmgott fjölskylduhús með stórum palli og grónum garði.
Bjart og vel skipulagt 162,5 fm pallaraðhús með innbyggðum bílskúr á vinsælum stað í Bökkunum.
Hér færðu heimili sem hentar fjölskyldunni vel – gott skipulag á þremur pöllum, stofa og borðstofa í opnu rými með útgengi á vestursvalir.
Frá sjónvarpsrými er gengið beint út á stóran pall og fallegan, gróinn garð.
Þrjú stór herbergi og eitt minna sem hægt væri að nota sem skrifstofu.
Eftirsótt staðsetning, stutt í skóla, leikskóla, verslun og þjónustu og þá er Elliðaárdalurinn í næsta nágrenni með fjölbreyttum göngu- og hjólastígum.


Helstu kostir:
  • 162,5 fm pallaraðhús með innbyggðum bílskúr
  • Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi
  • Stór pallur og gróinn garður
  • Vestursvalir út frá stofu
  • Tvö bílastæði með hitalögnum
  • Fjölskylduvæn og vinsæl staðsetning
Nánari lýsing

Miðpallur:
Forstofa með fataskáp. Hol með aðgengi að eldhúsi og gestasnyrtingu. Eldhús með ljósri innréttingu, flísum á milli skápa og borðkrók. Flísar á gólfi.
Efri pallur:
Stofa og borðstofa í opnu rými með útgengi á svalir. Eitt stórt herbergi og annað minna. Parket á gólfum.
Neðri pallur:
Tvö herbergi með parketi og skápum. Sjónvarpshol með útgengi á pall og garð. Flísar með gólfhita.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með „walk-in" sturtu og góðum skápum. Þvottahús með hillum.

Tvö hellulögð bílastæði með hitalögnum fyrir framan bílskúr. Heitt og kalt vatn í bílskúr.
Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin, m.a. klæðning á göflum og milligöflum.
Eign sem vert er að skoða.

Allar frekari upplýsingar veitir Sigríður Jónasdóttir löggiltur fasteignasali í síma 661-4141, eða gegnum tölvupóstfangið sigridur@bjarturfasteign.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0,8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: Af kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv., kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

 

img
Sigríður Jónasdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Bjartur fasteignasala
Hlíðasmára 10, 201 Kópavogur
Bjartur fasteignasala

Bjartur fasteignasala

Hlíðasmára 10, 201 Kópavogur
img

Sigríður Jónasdóttir

Hlíðasmára 10, 201 Kópavogur
Bjartur fasteignasala

Bjartur fasteignasala

Hlíðasmára 10, 201 Kópavogur

Sigríður Jónasdóttir

Hlíðasmára 10, 201 Kópavogur