Lýsing
Miklaborg kynnir: Til sölu nýlegt 231,5 fm iðnarðarbil á tveimur hæðum. Á neðri hæð sem er 120 fm er innkeyrsluhurð að framan og aftan þannig að gegnum akstur er mögulegur. Góð lofthæð, flísar á gólfi og snyrting. Stigahús með aðgengi að báðum hæðum. Efri hæð er 111,5 fm og skiptist í stórt opið rými. Fundarherbergi með eldhúsinnréttingu og útgengi á svalir í norður. Teppi á skrifstofu og fundarherbergi. Fullbúið baðherbergi með sturtuaðstöðu. Ræstikompa. Tvö einkabílastæði fylgja með á lóðinni. Ofnakynding á efrir hæð en loftakynding á þeirri neðri. Einkar skemmtilega hanna húsnæði sem býður upp á ýmsa nýtingu. Um er að ræða vsk húsnæði. Leigusamningur er um eignina til ársloka 2027 með góðum leigutekjum.
Nánar upplýsingar veitir Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300.