Opið hús: Gerplustræti 16, 270 Mosfellsbær, Íbúð merkt: 01 02 02. Eignin verður sýnd mánudaginn 27. apríl 2026 milli kl. 16:45 og kl. 17:45.
Lýsing
Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is
Eignin Gerplustræti 16 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 235-5314, birt stærð 67.1 fm. Þar af er sérgeymsla á 1. hæð merkt 0104, skráð 5,7fm.
Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið inn um sérinngang. Tvöfaldur fataskápur. Flísar á gólfi.
Alrými: Rúmgott alrými með samliggjandi stofu og eldhúsi.
Eldhús: Samliggjandi og opin við stofu. Innrétting með góðu skápaplássi, ofn í vinnuhæð, innfellt helluborð í eldhúsbekk ásamt vask. Aðstaða fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Gluggi með opnanlegu fagi.
Stofa: Rúmgóð með fallegum stóum gluggum með fallegu útsýni í átt að Úlfarsfelli. Samliggjandi og opin við eldhús. Útgengt út á stórar yfirbyggðar svalir.
Svalir: 15,3fm yfirbyggðar svalir til suðvesturs.
Svefnherbergi: Rúmgott með góðu skápaplássi.
Baðherbergi: Rúmgott með "walk in" sturtu með glerskilrúmi. Upphengt salerni, innrétting með neðri skápum, skúffum og vaski. Stór spegill fyrir ofan vask með innbyggðri lýsingu. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Sérgeymsla eignar er innaf sameignargangi. 5,7fm.
Sameign: İ sameign allr eru stigahús (0109), inntaksrými (0110), gangur/ hjóla & vagnageymsla (0111) opinn gangur / stigi (0204 og 0304) og þak (0401) ásamt ytra byrði húss.
Rafmagn: Sér rafmagnsmælar eru fyrir hverja séreign í húsinu. Sameign allra er á sér mæli og skiptist kostnaður jafnt milli séreigna í húsinu. Mælar og inntak eru staðsett í inntaksrými merkt 0110 í sameign allra.
Hiti: Sameiginlegur mælir er fyrir hita í húsinu og skiptist kostnaður miðað við upphitað rúmmál séreigna auk jafnrar hlutdeildar í upphitun í sameign allra. Kostnaður miðast við ofangreindar hlutfallstölur í hitakostnaði. Vatnsinntak og hitamælar eru staðsett í inntaksrými merkt 0110 í sameign allra.
Falleg tveggja herbergja íbúð með sérinngangi og stórum yfirbyggðum svölum til suðvesturs á 2. hæð (jarðhæð frá götu) í nýlegu og vinsælu hverfi í Mosfellsbæ. Glæsilegt útsýni í átt að Úlfarsfelli og stutt í stórbrotna náttúru og fallegar gönguleiðir.
Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.