Sýningaríbúð á Laugavegi 168 - Jason sími 7751515
Lýsing
Glæsileg 3ja herbergja útsýnisíbúð á 4. hæð með gæða ítölskum sérsmíðuðum innréttingum og nýjustu Siemens tækjum. Gólfhiti er í íbúðinni og eru flestir gluggar gólfsíðir. Eignin skiptist í anddyri með fataskápum, baðherbergi með sturtu. Sér þvottaherbergi. Svefnherbergi með fataskápum. Útsýni til sjávar og fjalla. Gluggi á baðherbergi innan svefnherbergis. Aðalrýmið skiptist í eldhús og stofu og með útsýni, gengið út á norðu svalir úr herbergi. Glæsilegar innréttingar. Siemens tæki af vandaðri gerðinni. Svalir til suðurs úr alrými.
Stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni og sérgeymsla að stærðinni 10,7 fm
Heimasíða
Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt Bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds.
Miðlæg staðsetning tryggir gott aðgengi að helstu umferðaræðum sem sparar tíma og peninga.
Örstutt í helstu stofnbrautir eins og Sæbraut, Kringlumýrabraut og Miklubraut.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem er 0,3% af væntanlegu brunabótamati
Bókið skoðun hjá sérfræðingum um eignina:
Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 / jason@betristofan.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.