Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Arnar Birgisson
Lína Rut Olgeirsdóttir
Tryggvi Gunnarsson
Bergþóra Höskuldsdóttir
Upplýsingar
svg
Byggt 1933
svg
218 m²
svg
7 herb.
svg
3 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

Eignaver 460-6060

Klapparstígur 3  Akureyri.     **** Bókið einkaskoðun ****
Mjög gott, bjart og vel viðhaldið 218 fm einbýlishús á þremur hæðum á einum besta útsýnistað bæjarins. Stutt er í alla þjónustu og fjölbreytt mannlíf.

Nánari lýsing:

Miðhæð:
Forstofa flísar á gólfi, fatahengi, gólfhiti.
Hol/gangur parket á gólfi.
Stofa og borðstofa koma saman í rúmgóðu rými, parket á gólfi, fallegt útsýni.
Eldhús korkflísar á gólfi, mjög fín innrétting með góðu vinnuplássi, borðkrókur, úr eldhúsi er gengið út á góða timburverönd sem snýr í suðvestur. Verönd er yfirbyggð að hluta.
Snyrting dúkur á gólfi, upphengt wc, lítil vaskainnrétting, skápar, loftræsting.

Efri hæð:
Stigi
upp með teppi. Úr stigaholi er gengið út suðvestursvalir.
Gangur með parketi.
Þrjú rúmgóð herbergi, öll með parketi á gólfum, fataskápar í tveimur herbergjum.
Stofa með parketi, glæsilegt útsýni þar sem fjallahringurinn fær að skarta sínu fegursta. Stofu mætti nýta sem fjórða herbergi á hæðinni. Góðir fataskápar.
Baðherbergi flísar á gólfi, rúmgóður sturtuklefi, upphengt wc, góð innrétting, gluggi. Hiti í gólfi.

Kjallari:
Stigi niður, teppi.
Hol/ gangur parket á gólfi.
Snyrting flísar á gólfi, lítil innrétting, upphengt wc, gólfhiti. Loftræsting.
Svefnherbergi er rúmgott,  parket á gólfi.  
Þvottahús er mjög rúmgott, flísar á gólfi, gluggi. þvottavél og þurrkari í vinnuhæð.
Geymslur eru tvær önnur mjög rúmgóð, parket á gólfi og góðar hillur. Hin er sýnu minni, parket á gólfi, hillur.
Köld geymsla undir útidyratröppum, steypt gólf, hillur.
Sérinngangur inn í kjallara er á norðurhlið eignarinnar, gangur með flísum, gólfhiti.

Eignin hefur verið mikið endurnýjuð frá 1986 og allt viðhald hefur verið unnið af fagmönnum s.s málning, múr, pípulagnir, rafmagn og trésmíði. ( Þegar gluggar, hurðir og listar var endurnýjað þá var horft til upprunalegs útlits )
Þak var endurnýjað 1995 jafnframt var þá sett ný einangrun og gluggar endurnýjaðir 2003


Annað:
- Vönduð eign í hjarta bæjarins.
- Varmaskiptir á miðstöðvarlögnum.
- Stutt í miðbæinn.
- Hiti í bílastæði að norðan.
- Lofthæð í kjallara ca 205 - 220 cm
- Geymsluskúr ca 10 fm á lóð fylgir með.

- Eignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu.

Nánari upplýsingar hjá eftirtöldum aðilum :
Tryggvi          s: 862-7919   / tryggvi@eignaver.is
Begga           s: 845-0671   / begga@eignaver.is
Arnar             s: 898-7011   / arnar@eignaver.is

 

Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone
Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone