Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Gylfi Þór Gylfason
Vista
svg

482

svg

317  Skoðendur

svg

Skráð  15. sep. 2026

einbýlishús

Aflakór 8

203 Kópavogur

220.000.000 kr.

748.299 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2311240

Fasteignamat

266.300.000 kr.

Brunabótamat

155.360.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2015
svg
294 m²
svg
10 herb.
svg
3 baðherb.
svg
6 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

AFLAKÓR 8, glæsilegt 294 fm tvíbýlishús við Aflakór 8 í Kópavogi. Húsið sem er allt hið glæsilegasta.
Íbúðarhlutinn er 294 fm sem skiptist þannig að íbúðarhluti á tveimur hæðum er 241,2 fm og bílskúr 52,8 fm eða samtals 294 fm.  Eignarhlutanum hefur svo verið skipt upp og er sér 3ja herb. íbúð niðri sem er 101,4 fm, með sérinngangi og aðalhæðin uppi er 139,8 fm og skiptist í mjög rúmgóðar stofur og borðstofa, sem er opið inn í eldhús, þvottarhúsi, baðherbergi, tvö herbergi með fataherbergi innaf hjónaherbergi, og svo rúmgóður 52,8 fm bílskúr.
Um er að ræða hús sem búið er að skipta í tvær 3ja herb. sem er allt mjög vandað, í íbúðinni hefur stigaopinu verið lokað, en steyptur stigi er til staðar á milli hæða.


Nánara skipulag eignarinnar.
Gengið er beint inn af bílaplani, þar er komið inn í flísalagt anddyri með góðum skáp, innaf anddyri er flísalögð gestasnyrting, en er nýtt sem þvottarhús. Úr anddyri er komið inn í stórt rými sem eru stofur og borðstofa, fallegur arinn er í miðju rýminu, gólfsíðir gluggar eru á rýminu og fallegt harðparket á gólfi, stofurýmin eru að hluta opin inn í eldhús sem er mjög fallegt og með stórri innréttingu. Gengið er út á stórar svalir bæði úr stofu og eldhúsi. Svefnherbergisgangur er með tveimur herbergjum,inn af hjónaherbergi er fataherbergi. Baðherbergi er flísalagt með baðkari sturtu og innréttingu.
Sérinngangur er í bílskúrinn sem er mjög rúmgóður 52,8 fm með gluggum og epoxy á gólfum.
Séríbúð er í þessum eignarhluta á neðri hæð, þar sem stiganum hefur verið lokað og gólfefni sett yfir, auðvelt að breyta því til baka og tengja neðri hæðina aftur aðalhæaðinn. En sérinngangur er í íbúðina norðvestan meginn við húsið þar er gengið niður tröppur við lóðarmörk og komið inn í flísalagt anddyri. Þar eru tvö herbergi með harðparketi á gólfi, stofa með flísum á gólfi og eldhús hefur verið sett upp við hliðina á stiga, þar eru flísar á gólfum. Flísalagt baðherbergi með sturtu og þvottarhús með geymslu inn af, flísar á gólfum.

Húsið er allt hið vandaðast, gólfhiti í öllu húsinu, steyptir stoðveggir sem mynda skjól við húsið, steyptar tröppur á báðum hliðum sem mynda sérinngang í auka íbúðina og sérafnotaflötur við aukaíbúðina.  Allar innréttingar og tréverk er mjög vandað og arinn í miðju alrými efri hæðar er mjög flottur og er hægt að loka honum með gleri.  Auðvelt er að gera breytingar á húsinu og tengja neðri hæð aðalíbúðar aftur við efri hæð. Um er að ræða sannkallað fjölskylduhús á góðum stað í Kópavogi.

Um er að ræða mjög flott og vandað tvíbýlishús með aukaíbðúð.
Allar frekari uppl. um eignina veitir Heiðar Friðjónsson lögg. fasteignasali í s. 693-3356 og heidar@valholl.is  Pantið skoðun hjá Heiðari.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.





 

img
Heiðar Friðjónsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Valhöll fasteignasala
Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
img

Heiðar Friðjónsson

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. maí. 2022
108.900.000 kr.
110.000.000 kr.
294 m²
374.150 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone

Heiðar Friðjónsson

Síðumúla 27, 108 Reykjavík