Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1990
svg
229,1 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
svg
Aukaíbúð
Opið hús: 3. maí 2026 kl. 15:00 til 15:30

***OPIÐ HÚS SUNNUDAGINN 3.5.2026 FRÁ 15:00 - 15:30***

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir: Virkilega fallegt einbýli við Smáratún 13 á Álftanesi, 225 Garðabæ. Eignin er skráð 229,1 fm og skiptist í fimm svefnherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, tvö baðherbergi, anddyri og bílskúr. Fallegur garður og sólpallur með heitum potti er fyrir aftan hús. Góð staðsetning á Álftanesi, mjög stutt í skóla og ekki þörf á að fara yfir götu í skóla, leikskóla og allt íþróttastarf. Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: darri@fstorg.is 

Nánari lýsing: Komið er inn í stórt og opið anddyri, náttúrusteinn á gólfi. Góðir fataskápar í anddyrinu. Fallegt eldhús með hvítri og viðar innréttingu, góðu skápaplássi. Eyja með granítborðplötu, pláss fyrir stóran ísskáp. Góð borðstofa með náttúrustein á gólfinu sem og á sjónvarpsholi. Stofan er björt og rúmgóð, með parketi og úr henni er útgengt á sólpall sem snýr í vestur. Fimm svefnherbergi eru í húsinu. Hjónaherbergi með góðum skápum og fjögur barnaherbergi. Skápar eru í tveimur barnaherbergjum og parket á öllum herbergjum. Þvottahús er með náttúrustein á gólfi og flísum á veggjum, þar er einnig klósett og möguleiki að breyta í tvö rými; klósett og þvottahús. Baðherbergið er flísalagt, með innréttingu, sturtu og upphengdu salerni. Innangengt er í stóran bílskúr með epoxy á gólfi og lítilli eldhúsinnréttingu. Rúmgott geymsluloft yfir hálfum bílskúr. Möguleiki á því að breyta bílskúr í íbúð. Bílastæðið er hellulagt með pláss fyrir 3 bíla, lóðin að framan eru grófir steinar.  Garðurinn fyrir aftan hús er gróinn og góður pallur þar sem er heitur pottur. Garðurinn er að öllu leyti afgirtur og því tilvalinn fyrir hundaeigendur eða fjölskyldur með ung börn. Í garðinum er m.a. pláss fyrir körfubolta körfu, trampólín og fótboltamörk. Pallurinn er rúmgóður og snýr í vestur.
 
Endurbætur: 
Árið 2022 var ýmislegt uppfært. Skjólveggir allan garðinn, hlaðið á milli garða, þakið og þakkantur málað og lagðar nýjar gras torfur. Ný innfeld ljós sett upp (breytt úr hallogen í led). Ný pottastýring og bílaplan stækkað ásamt því að setja upp ný ruslaskýli. Auk þess var hellulagt bak við bílskúr fyrir körfuboltavöll. Sett var ný útidyrahurð með talnaborðslæsingu og hluti af pallinum var lagfærður árið 2025.

Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: darri@fstorg.is 

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
2. maí. 2016
46.800.000 kr.
62.000.000 kr.
229.1 m²
270.624 kr.
16. ágú. 2012
40.850.000 kr.
50.000.000 kr.
229.1 m²
218.245 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone