Opið hús: Bríetartún 16, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 04 01. Eignin verður sýnd sunnudaginn 10.maí 2026 milli kl. 13:30 og kl. 14:00
Lýsing
Um er að ræða mjög skemmtilega 4ja herbergja íbúð (rishæð) á góðum stað í miðbænum með útsýni yfir bakgarðinn.
Eignin er á efstu hæð með svalir til suðurs og góðu útsýni. Fyrir aftan húsið er sólríkur garður sem snýr til suðurs og er sameigninlegur öllum 8 íbúðum hússins.
Garðurinn liggur að grónum og skjólsælum bakgarði þar sem er körfuboltavöllur, leikvöllur og líkamsræktartæki.
Í göngufæri við kaffihús, verslanir, veitingastaði, sundlaugar, skóla, leiktæki og mjög stutt að ganga í miðbæinn.
Ungbarnaleikskóli er í götunni og einnig eru leikskólar í göngufæri, stutt er í allar almenningssamgöngur í allar áttir.
Eignin sjálf skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu/herbergi, hjónaherbergi, barnaherbergi og baðherbergi. Geymslan og sameiginlegt þvottahús er í kjallara bæði með glugga.
Nýlegt vínilparket er á öllum gólfum nema eldhúsi og baðherbergi þar eru flísar. Útgengi út á góðar suðursvalir.
Söluyfrlit
Eignin getur verið laus fljótlega.
Nánari upplýsingar veita:
Jóhanna Margrét Jóhannsdóttir, Löggiltur fasteignasali, í síma 8200788, tölvupóstur johanna@borgir.is.
Bjarklind Þór, Löggiltur fasteignasali, í síma 6905123, tölvupóstur bjarklind@borgir.is.
Á síðustu fjórum árum hafa gluggar verið endurnýjaðir, heita-og kaldavatnslagnir að hluta og verið var að klára múrviðgerðir og steiningu á húsinu. Eitt íbúa kort fylgir eigninni vegna bílastæðis.
Samkvæmt deiliskipulagi má byggja kvisti á húseignina og stækka þannig íbúðina umtalsvert og hafa þegar verið gerðar teikningar. Gluggar í norður myndu þá hafa útsýni í norður og vestur.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 70.000 mvsk.