Opið hús: Fífumói 1, 260 Reykjanesbær, Íbúð merkt: 104. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 5. maí 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Eignin Fífumói 1 er skráð sem 2ja herbergja íbúð. Birt stærð 54.1 fm.
Mikið endurnýjuð 2ja herbergja íbúð á jarðhæð í tveggja hæða fjölbýlishúsi í Reykjanesbæ. Svalir snúa í austur.
Söluyfrlit
Þvottaaðstaða innan íbúðar
Geymsla/fataherbergi er inn af anddyri.
Stofa/eldhús er í opnu rými með útgengi út á svalir.
Tengi er fyrir borðuppþvottavél.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, walkin sturta og upphengt salerni.
Herbergi er með fataskáp.
Harðparket er á gólfum, nema á baðherbergi þar sem eru flísar. Sameiginleg hjólageymsla er við inngang hússins. Einnig er sameiginlegt þurrkherbergi sem notað er sem geymsla á sömu hæð.
Myndir sem sýna kozy stemmingu eru tölvuteiknaðar og eiga að gefa hugmyndir um útlit og nýtingu eignarinnar.
Vinsælt hverfi. Rúmgott bílastæði er við húsið, þar er rafhleðslustöð.
Hverfið tilheyrir Njarðvíkurskólahverfi og er í göngufæði við alla helstu þjónustu og íþróttasvæði, einnig er fallegt útivistarsvæði með frisbígolfi og leikvelli steinsnar frá eigninni.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 70.000 mvsk.