Lýsing
Til sölu er lóð 39 C á Víðum í Stafafellsfjöllum, rétt austan við Jökulsá í Lóni.
Lóðin er staðsett á vinsælu útivistarsvæði í Lónssveit í um 30 km. austan við Höfn.
ATH. EINNIG ER TIL SÖLU SAMLIGGJANDI LÓÐ, STAFAFELLSFJÖLL 39B.
SAMTALS ER LÓÐIRNAR 6328,7 FM.
Hér getur þú sótt söluyfirlit
LÓNSVEIT er af mörgum talinn einn fegursti staður landsins.
Litrík Líparítfjöllin allt um kring, góðar og fjölbreyttar gönguleiðir, m.a. í Kollumúla.
Kjarrivaxnar hlíðar og stórkostlegar jarðmyndanir á svæðinu.
Stutt frá lóðinni eru fallegt gil, Hvannagil og snoturt lítið stöðuvatn, Vötnin, umkringt litskrúðugum fjöllum.
Á lóðinni, sem er um 3093,9 fm. samkvæmt deiliskipulaginu, er töluvert birkikjarr.
Nánar um skipulag í Stafafellsfjöllum.
Á skipulagssvæðinu eru skilgreindar 78 lóðir undir frístundarhús.
Á hverri lóð er heimilt að byggja allt að 3 hús, sem fer þó eftir stærð lóða.
Frístundarhús/aðalhús má vera allt að 120 fm. og ekki minni en 30 fm.
Aukahús/gestahús getur verið allt að 30 fm. þó ekki stærra en helmingur af stærð aðalhúss.
Geymsla getur verið allt að 25 fm. Á lóðum sem eru 6000 fm og stærri er leyfilegt byggingarmagn allt að 180 fm. en á minni
lóðum takmarkast það við nýtingarhlutfallið 0,03.
Vatnsöflun á svæðinu er á ábyrgð hvers lóðareiganda.
Nánari upplýsingar veita:
Knútur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s: 7755-800 / knutur@helgafellfasteignasala.is
Kristján Þór Sveinsson, löggiltur fasteignasali, s: 898-6822 / kristjan@helgafellfasteignasala.is
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.