Opið hús að Álftamýri 58, 4. hæð mánudaginn 11. maí frá fimm til korter í sex. Ægir s. 896-8030 eða aegir@borgir.is verður á staðnum.
Lýsing
Björt og falleg íbúð á 4. hæð á vinsælum stað.
Þetta er syðsta Álftamýrar blokkin næst Kringlunni.
Skóli og íþróttasvæði hinumegin við götuna.
Öll þjónusta í gögnufæri.
Suður svalir - útsýni.
Skipulag íbúðar:
Komið strax inn í parketlagt alrými þ.e. stofu og eldhús.
Hvít eldri eldhúsinnrétting sem lítur vel út. Uppþvottavél getur fylgt með.
Stofan er björt með stórum útsýnis glugga í suður.
Svefnherbergið er inn af stofu, parket á gólfi og þar fataskápur.
Suður svalir frá svefnherbergi.
Baðherbergið er er með hornbaðkari, flísar á gólfi og vegg kringum baðkarið, tengt fyrir þvottavél.
Sameiginlegt þvottahús í efri kjallaragangi.
Góð hjólageymsla í sameign.
Mjög rúmgóð sér geymsla á gangi í neðri kjallara (geymsla nr. 37).
Samþykkt í Húsfélagi að skipta út gluggum sem þarf. Talið er að til sé í framkvæmdasjóði fyrir framkvæmdinni.
Nánari upplýsingar veitir Ægir s. 896-8030 eða aegir@borgir.is
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 70.000 mvsk.