Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Gylfi Þór Gylfason
Vista
fjölbýlishús

Kleppsvegur 132

104 Reykjavík

66.900.000 kr.

767.202 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2018490

Fasteignamat

63.350.000 kr.

Brunabótamat

42.700.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1966
svg
87,2 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Fasteignasalan Valhöll og Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905, kynna í einkasölu, Kleppsveg 132, 104 Reykjavík;
Bjarta, fallega og rúmgóða 3ja herbergja útsýnisíbúð á 8. hæð í vel viðhaldinni lyftublokk í 104 Reykjavík.
Húsið Kleppsvegur 132-134 hefur fengið gott viðhald undanfarin ár.


- Birtar stærðir skv. HMS: Íbúð er 82,4 fm + geymsla 4,7 fm
- Samtals því 87,2 m2 að stærð
- 8. hæð -óhindrað stórbrotið útsýni - suður svalir
- 3ja herbergja - 2 óvenju rúmgóð svefnherbergi
- 2021: Baðherbergi íbúðar gert upp og endurnýjaðar allar innihurðar íbúðar.
- 2017: Húsið málað að utan. 
- 2017: Nýjir gluggar í öllum íbúðum.
- 2017: Svalir flotaðar og steyptar. 
- 2017: Sprunguviðgerðir á ytra byrði húss.
- 2018: Ný lyfta.
- 2022: Nýjir dyrasímar.
- 2024: Viðgerð á hitakerfi hússins. Allur miðlægur búnaður hitakerfis uppfærður (m.a. skipt um hitagrind og dælu) og strengloka sett á hverri hæð. 
- 2025: Rafhleðslustöðvar á bílastæði.
- 2025: Stigagangur málaður og teppalagður.


Eignin skiptist í: Forstofu/hol, eldhús, stofu/borðstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu í sameign.
Nánari lýsing: 
Gengið er inn um sameiginlegan inngang á framhlið hússins og inn á snyrtilegan stigagang með lyftu.
Forstofa/hol: Af stigagangi, flísalagt með fataskáp. Af því er gegnið inn í aðrar vistarverur eignarinnar.
Eldhús: Af forstofu, opið við stofu/borðstofu. Flísalagt með ljósri innréttingu á tveimur veggjum og borðkrók með útsýni. Gott skápapláss með efri og neðri skápum og hvítum flísum á milli skápa. Gott vinnurými.
Stofa/borðstofa: Í opnu rými. Opið við forstofu og eldhús. Parketlagt og bjart með síðum gluggum, stórbrotið útsýni. Þaðan er útgengt á svalir.
Svefnherbergi (hjónaherbergi): Parketlagt með skáp á heilum vegg með rennihurðum.
Svefnherbergi: Parketlagt með stórum skáp með rennihurðum.
Baðherbergi: Fallegt, gert upp 2021. Flísalagt á gólfi og veggjum með "walk in" sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni, vaskinnréttingu og skápum.
Geymsla: Sér geymsla íbúðarinnar er 4,7 fm, staðsett í sameign í kjallara.
Þvottahús: Er í sameign í kjallara. Þar eru vélar í eigu húsfélagsins.  2 þvottavélar og 2 þurrkarar.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymslu er í sameign í kjallara. 

Lóð: Lóðin er stór 17.849 og það er sameiginlegt lóðafélag fyrir Kleppsveg 128-144. Stóra húsfélagið er fyrir Kleppsveg 132-134 og svo fyrir hvern stigagang.

Samantekt: Í heildina er um að ræða vel skipulagða, bjarta og fallega, 3ja herbergja íbúð í húsi sem hefur fengið gott viðhald, á besta stað á Kleppsvegi, 104 Rvk.
Góð staðsetning; Öll skólastig eru í næsta nágrenni. Þetta er barnvænt umhverfi með leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla í göngufæri, auk þess sem sundlaugin og Holtagarðar með Bónus, líkamsræktarstöð ofl. er handan götunnar. Góðar hjóla og göngusamgöngur allt um kring. Lystigarðurinn rétt hjá

Allar nánari upplýsingar veitir Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-89805

Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
31. mar. 2020
37.250.000 kr.
39.000.000 kr.
87.2 m²
447.248 kr.
16. sep. 2014
20.600.000 kr.
24.200.000 kr.
87.2 m²
277.523 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone