Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Svavar Friðriksson
Sigríður Rut Stanleysdóttir
Upplýsingar
svg
Byggt 2026
svg
164,3 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir : 
Glæsileg ný fimm til sex herbergja íbúð á 1 hæð í 10 íbúða lyftuhúsi við Úugötu 6 í Mosfellsbæ. Eigninni fylgir stæði í bílageymslu. Fallegt útsýni til suðurs. Rúmgóðar svalir. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvær stofur, fjögur svefnherbergi, 2 baðherbergi og 7,9fm geymslu í kjallara. Íbúðin skilast fullbúin án gólfefna. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is eða Sigríður Rut Stanleysdóttir í síma : 699-4610 eða á siggarut@fstorg.is

NÁNARI LÝSING : 

Forstofa er með fataskáp og flísum á gólfi.
Stofa og borðstofa er rúmgóð og í opnu rými með eldhúsi. Úr stofu er gengið út á svalir í suðurátt með fallegu útsýni. Mjög auðvelt að útbúa fimmta svefnherbergið í stofunni.
Eldhús er með fallegri innréttingu frá GKS. Í innréttingu er ofn, spanhelluborð, háfur, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur.
Svefnherbergin eru 4 og eru fataskápar í hjónaherbergi. Innaf hjónaherbergi er baðherbergi nr. 2
Baðherbergi nr. 2 er innaf hjónaherbergi. Er með flísum á gólfi, sturtu, handklæðaofni, vegghengdu salerni og innréttingu með skolvaski.
Þvottahús er með flísum á gólfi og innréttingu með vaski. Í innréttingu er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara
Íbúðinni fylgir bílstæði í bílageymslu merkt : B01. 
Einnig fylgir hlutdeild að sameiginlegri vagna- og hjólageymslu.
Eignin skilast með parketi og flísum á gólfi.

Ath. myndirnar eru að 3 herbergja íbúð í húsinu.

Annað: Úugata 6-8 eru tvö 2ja hæða fjölbýlishús með 10 íbúðum hvor ásamt bílakjallara. Húsbyggjandi og aðalverktaki er Gerð ehf. Húsin eru staðsteypt og klædd að utan með mismunandi klæðningarefni í mismunandi litum til þess að tryggja uppbrot og fjölbreytileika. Lóð verður fullfrágengin eigi síðar en við afsal. Með hverri íbúð fylgir bílastæði í bílageymslu en heildarfjöldi bílstæða á lóð og bílakjallara eru 48 stæði, þar af 4 stæði fyrir hreyfihamlaða. Gönguleið að húsi verður hellulögð með snjóbræðslu. Íbúðirnar afhendast fullbúnar en án gólfefna í alrými og herbergjum. Flísar frá Álfaborg á baðherbergjum, forstofum og þvottahúsum. Eldhúsinnréttingar eru frá GKS trésmiðju. Eldhústæki eru frá Siemens. Myndavéladyrasími. Í bílageymslu er gert ráð fyrir mögulegri tengingu rafbíla í öllum bílastæðum. Sameign skilast fullbúin með fullfrágenginni lyftu. Lóð er fullfrágengin, hellulögð ásamt gróðri og þökulögn skv. teikningum. 

Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is eða Sigríður Rut Stanleysdóttir í síma : 699-4610 eða á siggarut@fstorg.is

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone