Upplýsingar
Byggt 2001
106,8 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 7. maí 2026
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Kristnibraut 10, 113 Reykjavík, Íbúð merkt: 05 02 01. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 7. maí 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
**Bókið einkaskoðun hjá Rögnvaldi í síma 660-3452 eða rognvaldur@eignamidlun.is**Vel skipulögð þriggja herbergja 106,8m² íbúð á annari hæð með glæsilegu útsýni yfir borgina og til fjalla. Um er að ræða eign með einstöku útsýni og mikla nánd við náttúruna. Í göngufæri eru leik- og grunnskóli sem og náttúruperlur eins og Úlfarsfell og Reynisvatn. Golfvöllur GR við Grafarholtið einnig í göngufæri og örstutt er í flesta þjónustu. Aðeins þrjár íbúðir í stigahúsinu, sameign er snyrtileg og teppalögð.
Smellið hér til að fá söluyfirlit sent strax
Samkvæmt skráningu HMS er birt stærð eignarinnar 106,8m², þar af er geymsla skráð 7m².
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Sérgeymsla er á jarðhæð
Nánari lýsing:
Anddyri er flísalagt, góðir fataskápar.
Eldhús er með flísum á gólfi, eikar innrétting með eyju. Í innréttingu er tengi fyrir uppþvottavél, helluborð, vifta, ofn og vaskur. Gluggi er á eldhúsi.
Borðstofa er í framhaldi af eldhúsi, parket á gólfi.
Stofa er rúmgóð, frá stofu er gengið út á rúmgóðar suðvestur svalir með glæsilegu útsýni yfir borgina.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi.
Aukaherbergi er með parketi á gólfi og glugga með fallegu útsýni.
Baðherbergi með nettri innréttingu undir handlaug og speglaskáp fyrir ofan, baðkari og sturtu.
Þvottahús er innan íbúðar. Tengi fyrir þvottavél, þurrkara og skolvaskur.
Sameign: Sérgeymsla með glugga er i sameign þar er einnig hjóla-og vagnageymslu. Sameiginleg bílastæði eru á lóð fyrir framan hús, búið er að koma fyrir hleðslustaurum fyrir rafmagnsbíla.
Framkvæmdir sl. ára skv. seljanda:
- Húsið var sprunguviðgert & málað 2023
- Svalir viðgerðar 2023
- Gluggar yfirfarnir og skipt um þá sem þurfti, einnig gler og lista þar sem þurfti. 2023
- Þakviðgerðir 2021 ca.
Nánari uppl.
Rögnvaldur Örn Jónsson löggiltur fasteignasali í síma 660 3452 - rognvaldur@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook