Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Eskihlíð 22

105 Reykjavík

82.700.000 kr.

864.159 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2030466

Fasteignamat

76.250.000 kr.

Brunabótamat

48.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1957
svg
95,7 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 13. maí 2026 kl. 16:30 til 17:00

Opið hús: Eskihlíð 22, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 13. maí 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.

Lýsing

Skemmtileg íbúð á góðum stað í Hlíðunum !
 
Heimili Fasteignasala og Anna Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu fallega og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á 3. hæð í virðulegu fjölbýlishúsi  við Eskihlíð 22 í Reykjavík. Eignin er skráð 95,7 fm að stærð og skiptist í anddyri/hol, þrjú svefnherbergi setustofu með útgengi á vestur svalir með fallegu útsýni, eldhús og baðherbergi. Þá fylgir eigninni rúmgóð sérgeymsla, sem er ekki meðtalin í birtri stærð, sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla. Næg bílastæði eru við húsið og fallegur sameiginlegur garður.  Hér er um að ræða virkilega góða eign í einu eftirsóttasta hverfi borgarinnar þaðan sem örstutt er í allar áttir.
Sjón er sögu ríkari!

 
Allar frekari upplýsingar veitir Anna Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali, sími 898-2017  ** Bókið skoðun hjá as@heimili.is  **
 
Nánari lýsing:
Eskihlíð 22 er fjögurra hæða fjölbýlishús með níu íbúðum byggt árið 1957 og hefur fengið gott viðhald í gegnum árin.  Sameignin er vel umgengin snyrtileg og björt.  Íbúðin er á þriðju hæð til vinstri, gengið er inn í rúmgott hol þaðan sem gengið er inn í önnur herbergi íbúðar. Á gólfum er nýtt parket og við enda skála er innbyggður geymsluskápur/fatahengi. Allir gluggar og hurðir eru nýlega hvítlakkaðir og búið er að skipta um rafmagns innstungur. Í eldhúsi er falleg eldri innrétting en búið er að skipta um borðplötur og endurnýja eldavél, vask og blöndunartæki. Baðherbergið sem er með opnanlegum glugga var allt tekið í gegn 2022, hiti í gólfi, veggir flísalagðir að hluta, flísar á gólfi og flísalagður sturtuklefi, wc á vegg, handklæðaofn, vaskur í innréttingu og tengi fyrir þvottavél. Björt og falleg stofa er með nýlegu parketi á gólfi, gluggar til vesturs með fallegu útsýni, útgengi er úr stofu út á sér svalir eignar sem snúa í vestur. Upphaflega voru stofurnar tvær og með rennihurðum á milli en búið er að loka á milli þeirra og er önnur stofan því nýtt sem svefnherbergi í dag.  Rennihurðirnar eru inni í veggnum og mætti því auðveldlega breyta þessu aftur.  Þrjú björt og rúmgóð svefnherbergi með parketi á gólfum, minnsta herbergið hefur verið stækkað sem nemur innbyggðum fataskáp í nærliggjandi herbergi. Í kjallara er geymsla íbúðar ásamt sameiginlegu þvottahúsi og hjólageymslu.

Á árunum 1999-2000 var húsið endursteinað, gler og gluggapóstar endurnýjaðir og skipt um þakjárn. Árið 2017 var þakið síðan málað og árið 2020 var húsið múrviðgert og málað og skipt um glugga þar sem þurfti. 

Hér er um að ræða fallega eign í vinsælu hverfi þar sem stutt er í alla þjónustu, Háskólann í Reykjavík, Öskjuhlíðina, Ylströndina í Nauthólsvík og miðbæ Reykjavíkur. 

 


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
21. okt. 2022
49.800.000 kr.
61.200.000 kr.
95.7 m²
639.498 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone