Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2023
120,8 m²
5 herb.
1 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Glæsileg íbúð á þriðju hæð í nýlegu fjölbýlishúsi við Dugguvog 13. Húsið er byggt af Þ.G verk. Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klæddir með báruálklæðningum eða sléttum álklæðningum. Vogabyggð er vel staðsett hverfi í nálægð við hafið og náttúruna. Hjóla- og göngustígar liggja meðfram ströndinni sem og upp í Elliðaárdal og Laugardal. Skólar á öllum stigum í næsta nágrenni.* Fjögur svefnherbergi
* Tvö bílastæði fylgja í bílakjallara.
***Smelltu hér til að sækja söluyfirlit***
Nánari lýsing: 120,8 fermetra, 5 herbergja íbúð á þriðju hæð með 6,4 fermetra svölum til suðvesturs. Leyfi fyrir svalalokun. Þar af er geymsla 16,9 fermetrar og tvö bílastæði í bílakjallara.
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús sem er opið við rúmgóða stofu, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi.
Forstofa með hvítum fataskáp sem nær að lofti.
Eldhús með vandaðri innréttingu frá Nobilia. Blástursofn, spanhelluborð, innbyggður ísskápur ásamt innbyggðri uppþvottavél.
Rúmgóð stofa sem er opin við eldhús. Björt með gluggum til suðvesturs. Gengið er út á rúmgóðar svalir frá stofu. Leyfi er fyrir svalalokun.
Rúmgott baðherbergi með innréttingu frá Nobilia. Speglaskápur með lýsingu ofan við handlaug. Walk in sturta. Flísar á baðherbergisgólfi og hluta veggja. Vegghengt salerni. Handklæðaofn á baði.
Þvottahús er inn af baðherbergi. Flísalagt.
Innan íbúðar eru fjögur svefnherbergi.
Hjónaherbergið er rúmgott með miklu skápaplássi. Barnaherbergin eru þrjú talsins og eru öll rúmgóð og með skápum.
Sérsniðnar gardínur frá Álnabæ eru í íbúðinni og fylgja þær með í kaupunum.
Innréttingar og gólfefni: Innréttingar í eldhúsum og baðherbergjum eru frá þýska framleiðandanum Nobilia. Fataskápar eru frá GKS smíðaverkstæði. Gólfefni er harðparket að undanskildum votrýmum, þar eru flísar.
Sérstaklega rúmgóð 16,9 fm geymsla tilheyrir íbúðinni. Eigninni fylgja tvö sérmerkt stæði í bílageymslu. Hjólageymsla er í sameign.
Nánari upplýsingar veitir:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í síma 867-0968 eða unnar@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
5. mar. 2025
90.400.000 kr.
93.900.000 kr.
20304 m²
4.625 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026