Opið hús: Torfufell 21, 111 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 04 03. Eignin verður sýnd sunnudaginn 10. maí 2026 milli kl. 14:00 og kl. 14:30.
Lýsing
Eignin er skráð 78,7 fm. skv. Fasteignaskrá HMS, þar af er íbúðin sjálf 72,2 fm. og sér geymsla íbúðar á jarðhæð 6,5 fm. Auk þss eru yfirbyggðar svalir ca 6 fm. ekki inni í birtri stærð eignarinnar. Fallegt útsýni er frá eigninni.
Komið er inn í snyrtilega sameign á jarðhæð en hvort tveggja er inngangur frá bílastæði og frá garðinum. Sér geymslur íbúða, sameiginleg vagna og hjólageymsla og sameiginlegt þvottahús með iðnaðrþvottavél er á jarðhæð.
Nánari lýsing íbúðar;
Opioð hol/forstofa er rúmgott með stórum fataskáp.
Stofan er björt og rúmar vel bæði borðstofu og setustofu, hún er með góðum gluggum og hurð út á yfirbyggðar svalir.
Baðherbergi er flísalagt með baðkari með upphengdri sturtu, handklæðaofni, hvítri innréttingu og speglaskáp, tengi fyrir þvottavél.
Eldhúsið er mjög rúmgott með hvítri innréttingu með miklu skápaplássi og góðri vinnuaðstöðu, þar er gluggi með fallegu útsýni til austurs og borðkrókur.
Herbergin eru tvö, rúmgott hjónaherbergi með fataskáp og barnaherbergi einnig með fataskáp.
Ljóst harðparket er á gólfum íbúðar fyrir utan baðherbergi sem er flísalagt.
Endurbætur sem hafa farið fram á sameign;
- 2001 - skipt var um glugga. ( plastgluggar).
- 2010- húsið klætt að utan með álklæðningu
- 2011- svalir yfirbyggðar, 90 % lokun
- 2011- skipt yfir í eldvarnarhurðir inn í íbúðir
- 2014 Stigagangur málaður og handrið málað
- 2015- Bílastæði endurbætt, niðurföll löguð
- 2016- skipt um teppi í stigagangi.
Allar upplýsingar um eignina veitir Þóra Birgisdóttir löggiltur fasteignasali í síma 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.