Lýsing
Miklaborg kynnir: Vel skipulagðan 54 fm sumarbústað ásamt rúmgóðum óskráðum geymsluskúr og heitum potti. Bústaðurinn stendur vel í hlíð og nýtur mikils og skemmtilegs útsýnis yfir Norðurárdal og til fjalla. Bústaðahverfið er staðsett á svæði vestan við Þjóðveg 1 á móts við Munaðarnes. Svæðið er skjólsælt og er að stórum hluta vaxið birkikjarri.
Nánari lýsing
Bústaðurinn samanstendur af forstofu, þremur svefnherbergjum, baðherbergi, stofu/borðstofu, eldhúsi, góðum sólpalli, heitum potti, gróinni lóð og góðu bílastæði. Komið er inn í forstofu með fatahengi. Gott og bjart alrými með mikilli lofthæð sem rúmar stofu og borðstofu. Innst í stofurými er eldhúskrókur með innréttingu. Baðherbergi með vask, salerni og sturtuklefa. Gólfefni eru parket á öllu nema dúkur á baðherbergisgólfi. Stór sólpallur og heitur pottur eru við húsið..
Húsið stendur á steyptum stólpum og er lagnakjallari með inntökum. Húsið er hitað upp með hitaveitu. Lóðin er 515 fm leigulóð í eigu BSRB. Leigugjald á ári er 88.000 kr.
Margar skemmtilegar gönguleiðir, stutt er í sundlaugar, til dæmis í Borgarnesi og í Varmalandi. Golfvöllur er að Hamri, rétt utan við Borgarnes og í næsta nágreni er gólfvöllurinn Glanni í námunda við Bifröst.
Nánari upplýsingar veitir:
Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is