Lýsing
Heimili Fasteignasala og Anna Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu fallega og vel skipulagða 4ra - 5 herbergja endaíbúð á 1. hæð í viðhaldsléttu fjölbýli á vinsælum og eftirsóttum stað í Mosfellsbæ nánar tiltekið Klapparhlíð 32. Eignin er skráð 112,6 fm að stærð og skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, rúmgóða setustofu þar sem auðveldlega má bæta við fjórða svefnherberginu, bjart og fallegt eldhús í opnu rými við stofu. Útgengi út á sólríka rúmgóða afgirta timburverönd. Glæsilega endurnýjað baðherbergi. Þá fylgir eigninni sérgeymsla og sameigninleg hjóla- og vagnageymsla. Lóðin er fullfrágengin og í góðri rækt með fallegum trjám. Næg bílastæði eru við húsið. Falleg og vel staðsett íbúð í barnvænu hverfi. Í göngufæri er skóli, leikskóli, sundlaug og líkamsrækt þar sem börn þurfa ekki að fara yfir umferðargötu.
Allar frekari upplýsingar veitir Anna Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali, sími 898-2017 *** Bókið skoðun hjá as@heimili.is ***
Nánari lýsing:
Sérinngangur er inn í íbúðina. Komið er inn í anddyri með glugga, og hvítum fataskáp. Bjartur parketlagður gangur, Stórt og bjart hjónaherbergi með parketi og góðum fataskáp. Tvö önnur rúmgóð svefnherbergi með parketi og fataskáp. Stórt opið rými sem er í senn stofa, borðstofa og eldhús, útgengt út á rúmgóða sólríka timburverönd. Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu, nýleg borðplata og plötur á milli skápa, nýr vaskur og blöndunartæki, ofn á vegg og span helluborð en vifta er biluð, parket á gólfum. Fallegt nýlega endurnýjað baðherbergi, flísalagt hólf í gólf af meistara, wc á vegg, stór walk inn sturta, vaskur í innréttingu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara innaf baði ásamt þurrkaðstöðu.
Sjón er sögu ríkari!
Eignin er sérlega vel staðsett þar sem stutt er í Lágafellslaug og íþróttahús. Lágafellsskóli og leikskólarnir Hulduberg og Höfðaberg eru í göngufjarlægð. Einn skemmtilegasti golfvöllur landsins Hlíðavöllur er í hverfinu og margar skemmtilegar gönguleiðir
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.