Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þóra Birgisdóttir
Vista
svg

455

svg

396  Skoðendur

svg

Skráð  6. maí. 2026

raðhús

Brekkutangi 21

270 Mosfellsbær

184.900.000 kr.

678.034 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2083206

Fasteignamat

134.000.000 kr.

Brunabótamat

122.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1976
svg
272,7 m²
svg
9 herb.
svg
3 baðherb.
svg
6 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

Esja Fasteignasala og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali kynna nýja eign í sölu; Brekkutangi 21 er vel skipulagt fjölskylduvænt raðhús með aukaíbúð á góðum stað í Mosfellsbænum.
Eignin sem er 257,7 fm. skv. fasteignaskrá HMS er í raun nokkuð stærra eða 303 fm. samtals. Munar þar um viðbyggingu ofan á svölum og óskráð rými í kjallara. Húsið er á þrem hæðum með aukaíbúð í kjallara og rúmgóðum bílskúr (31,2 fm).
Nánari lýsing; Forstofa er flísalögð með fataskáp. Gestasalerni er inn af forstofu.
Komið er inn í hol sem tengir stofur og önnur rými hæðarinnar.
Eldhúsið er með eldri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, ágætt geymslupláss og vinnurými, barborð/bekkur sem hægt er að sitja við.
Stofan er björt með góðri borðstofu og setustofu með arni. Gengið er út í garð um svalahurð í stofu. Gott herbergi var gert úr hluta stofunnar, auðvelt að breyta til baka og fá stærra stofurými.
Efri hæð er vel skipulögð með 5 herbergjum;
1. Hjónaherbergi með fataskápum og hurð út á svalir
2. Barnaherbergi sem nú er notað sem skrifstofa
3. Svefnherbergi með fataskáp
4. Svefnherbergi með fataskáp
5. Nýtt, 15 fm. herbergi með gólfhita og þiljuðu lofti er viðbygging skv. samþykktum teikningum, byggt var yfir hluta svala en í framhaldi af herberginu eru stórar svalir (16 fm) í norður. Þetta rými er tilvalið sem fjölskylduherbergi en getur einnig nýst sem rúmgott svefnherbergi.
Baðherbergi er nýlega endurnýjað með gólfhita, innréttingu, upphengdu salerni og stórri og góðri "walk-in" sturtu, gluggi er opnanlegur.
Þvottahús er flísalagt með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð- góð vinnuaðstaða.
Auka íbúð - á jarðhæðinni er rúmgóð íbúð með sérinngangi, endurnýjuð 2013 þ.m.t. raflagnir, innréttingar, gólfefni og skápar.
Forstofan er rúmgóð og flísalögð. Stofan er rúmgóð með gluggum í suður, inn af henni er ágætt herbergi með fataskápum. Eldhúsið var endurnýjað 2019, það er rúmgott með nýlegri innréttingu og borðkrók, inn af eldhúsinu er rúmgóð geymsla ( hluti af óskráðu rými undir bílskúrnum ca 31 fm).  Baðherbergi var endurnýjað á vandaðan máta, stór "walk-in" sturtuklefi , upphengt salerni, innrétting og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Öflugt lofræstikerfi er tengt inn í baðherbergi og eldhús. Stigi milik hæðanna er til staðar og einfalt að opna aftur þannig að neðsta hæðin/aukaíbúð tilheyri aðal íbúðinni.
Bílskúrinn er 31,2 fm. er með góðri lofthæð, gluggum meðfram austurhliðinni, heitu/köldu vatni, rafmagni og gönguhurð á hliðinni sem snýr að inngangi í húsið. Innst í bílskúrnum er aukaherbergi sem nú er nýtt sem leiksvæði og líkamsræktaraðstaða. Góð aðkoma er að húsinu, hellulagt bílastæði með hitalögn undir og nýleg rafhleðslustöð.
Þetta er vel skipulagt og fjölskylduvænt hús sem hefur fengið gott viðhald og mikið verið endurnýjað. Brekkutangi er vel staðsett með tilliti til þarfa fjölskyldunnar, grænt svæði með leiksvæði og fótboltavelli skammt frá, stutt er í skóla, leikskóla, og íþróttamannvirki. Þá er stutt í verslun og þjónustu í miðbæ Mosfellsbæjar.

Allar frekari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

img
Þóra Birgisdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Esja fasteignasala
Sundagörðum 2, 104 Reykjavík

Esja fasteignasala

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík
phone
img

Þóra Birgisdóttir

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
27. maí. 2010
40.750.000 kr.
41.090.000 kr.
257.7 m²
159.449 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Esja fasteignasala

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík
phone

Þóra Birgisdóttir

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík