Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Jason Kristinn Ólafsson
Sverrir Pálmason
Vista
fjölbýlishús

Elliðabraut 6

110 Reykjavík

127.900.000 kr.

796.885 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2509660

Fasteignamat

117.750.000 kr.

Brunabótamat

112.110.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2021
svg
160,5 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

**Bókið einkaskoðun hjá Brynjari í síma 896-1168 eða brynjar@betristofan.is**

Glæsileg íbúð á efstu hæð með stórum þaksvölum.
Fjögurra til fimm herbergja samtals 160,5m² íbúð á efstu hæð með þrennum svölum þar af einum stórum 45fm þaksvölum sem ná suður og vesturátt.  Bílskúr fylgir (24,5m²) ásamt stæði í lokaðri bílageymslu. Aukin lofthæð eða 2,9 m. Vandaðar innréttingar eru í allri íbúðinni sem ná allar upp i loft, framleiðandi er VOKE-III.


Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 160,5m², flatarmál íbúðarrýmis er 131m², bílskúr er 24,5m² og flatarmál geymslu er 5m².
Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi (möguleiki að bæta við fjórða svefnherberginu), tvö baðherbergi, öðru með þvottaaðsstöðu, alrými með stofu, borðstofu, eldhúsi. Bílastæði og bílskúr í bílakjallara 

Nánari lýsing:
Forstofa með góðum fataskáp.
Frá forstofu er gengið inn í herbergi með fataskáp.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í stóru samliggjandi rými. Í Eldhúsi er stór eyja með helluborði. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél í innréttingu. Bakarofn og örbylgjuofn í vinnuhæð. Frá eldhúsi er gengið út á 45m² þaksvalir
Borðstofa er rúmgóð og þaðan er gengið út á svalir sem snúa inn í inngarðinn.
Frá stofu er gengið út á þriðju svalirnar en þær snúa til austurs.
Innaf stofu er herbergi með fataskáp.
Hjónaherbergi með fataskápum. Innaf hjónaherbergi er baðherbergi með sturtu, vegghengdu salerni, handklæðaofn, innréttingu og speglaskáp.
Aðalbaðherbergið er flísalagt á gólfi og veggum að hluta. Flísalögð sturta með glerskilrúmi og handklæðaofn. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara auk skápa.
Bílskúr fylgir íbúðinni og er hann í bílageymslunni. Bílastæði framan við bílskúrinn. Hleðslustöð fyrir rafbíl.
Í sameign á neðstu hæð er stór hjólageymsla og vagnageymsla.

Gólfefni eru vandað vínilparket frá Agli Árnasyni og flísar á baðherbergjum.

Norðlingaholtið er sérlega fjölskylduvænt hverfi sem heldur vel utan um þig og þína. Náttúruparadísin Heiðmörk, Rauðavatn, Paradísardalur og Elliðaárdalur eru í göngufæri með ótal göngu- og hjólaleiðum. Hverfið er byggt í hring umhverfis skólann, sem veitir aukið öryggi fyrir yngstu íbúa hverfisins.

 
Nánari uppl.
Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 896 1168 - brynjar@betristofan.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. mar. 2022
69.200.000 kr.
113.900.000 kr.
160.5 m²
709.657 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone