Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ólafur Árni Halldórsson
Vista
einbýlishús

Guðnýjarbraut 11

260 Reykjanesbær

128.700.000 kr.

571.746 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2289335

Fasteignamat

124.350.000 kr.

Brunabótamat

121.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2006
svg
225,1 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
Opið hús: 12. maí 2026 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Guðnýjarbraut 11, I-Njarðvík. Einbýlishús verður sýnt af Ólafi lögg. fasteignasala kl. 17:30 til 18:00 Þriðjudag 12. maí n.k. S: 618-7272, email: fron@fron.is

Lýsing

Finnbogi Kristjánsson lögg. fasteignasali co FRÓN fasteignamiðlun sýnir eignina s. 897-1212. finnbogi@fron.is

Lýsing
Frón Fasteignamiðlun kynnir í einkasölu: Vel skipulagt og fallegt 6 herb einbýlishús á einni hæð að Guðnýjarbraut 11, I-Nj. Reykjanesbæ. Heildarfermetrafjöldi eignarinnar er 225,1 fm. Þar af er íbúðarhlutinn 189,2 fm og bílskúr 42,2 fm skv skráningu HMS. Húsið er byggt árið 2006 og er timburhús klætt steindri klæðningu sem er ígildi steins og er viðhaldslétt.

Eigninni hefur verið skipt upp í tvær íbúðir sem hefur hvor um sig sér inngang. Auðvelt að breyta aftur. 
Góðir útleigumöguleikar. Afhending er samkomulag. Getur verið stuttur tími.
Rúmgóð 2ja herbergja íbúð annarsvegar og 5 herbergja íbúð hins vegar. Heildareignin samanstendur því af fjórum svefnherbergjum. Sér þvottaaðstaða er fyrir hvora íbúð fyrir sig. Þá eru tvö góð eldhús ásamt stofum og borðstofu. Stór hellulögð suðurverönd með stórum heitum potti og skjólgirðingu. Eignin er nýlega endurnýjuð að hluta, m.a. er nýtt parket á gólfum og bæði baðherbergin eru nýlega uppgerð. Að sögn seljanda er ástand hússins gott og hefur það fengið reglubundið viðhald í gegnum árin.

Stutt að ganga í skóla með sundlaug og íþróttahúsi. Þá er einnig stutt að ganga í leikskóla, útivistarsvæði og kirkju. Matvöruverslun og bakarí einnig í göngufæri. Frábærir gögnu- og hjólastígar meðfram ströndinni til Keflavíkur og eins upp á Stapa. Nánast út í Voga. 
Fasteignamat fyrir árið 2026 er 124.350.000,- kr.

Nánari lýsing eignarinnar:
2herb björt íbúð með gólfsíðum gluggum. Forstofa, með góðum fataskáp, flísum á gólfi og panel í lofti.
Baðherbergi er nýlega uppgert, með upphengdu salerni, góðri sturtuaðstöðu og er það flísalagt í hólf og gólf.
Gengið er beint inn í stofu og er svefnherbergi til hægri með góðum skápum en eldhús með hvítri innréttingu og borðstofa til vinstri. 
Úr stofu er útgengi út á stóra suður verönd með heitum potti. 
Nýtt parket er á allri ibúðinni fyrir utan forstofu og baðherbergi. Panill er í lofti. 

5herb. rúmgóð og vel skipulögð íbúð. Gengið er inn í forstofu með flísum á gólfi og góðum skápum. Í forstofu er hólf fyrir þvottavél og þurkara. Inn af forstofu er eldhús með hvítri innréttingu, stórri eyju og flísum á gólfum.
Loftin eru klædd með hvítum panelplötum.
Úr eldhúsi er gangur og þaðan er gengið inn á stórt baðherbergi sem er nýlega uppgert og er það flísalagt í hólf og gólf. Rúmgóður sturtuklefi, baðkar, upphengt salerni og baðinnrétting. Gluggi er á baðherbergi.
Af ganginum er gengið inn í fjögur herbergi.
Einu herberginu hefur verið breytt í stofu og þaðan er útgengi út á suður verönd með heitum potti.
Mjög gott fataherbergi er inn af herberginu/stofunni. Góðir fataskápar eru í öllum herbergjum.
Parket er á gólfum nema flísar á baðherbergi, eldhúsi og forstofu.

Fallegar spónlagðar innihurðir eru í öllu húsinu.
Hurðir og gluggar eru úr plasthúðuðu áli.

Bílskúrinn er 42,2 fm, mjög snyrtilegur með innréttingum fyrir þvottavéla og þurkara. Þá eru í skúrnum góðir geymsluskápar. Gólfið er flísalagt og loft klætt með hvítum panilplötum.

BÓKIÐ SKOÐUN***********BOOK A VIEWING********UMÓW WIZYTE
Upplýsingar veitir Ólafur Árni Halldórsson lögg. fasteignasali í síma 618-7272 eða fron@fron.is
og Finnbogi Kristjánsson lögg. fasteignasali og í síma 897-1212 eða finnbogi@fron.is 



Finnbogi Kristjánsson lögg. fasteigna- skipa og fyrirtækjasali og lögg. leigumiðlari hefur starfað við fasteignasölu í 40 ár og er eigandi af FRÓN fasteignamiðlun. Sérhæfing í sölu fasteigna, hótela, fyrirtækja, skipa, lands og bújarða. Lögn reynsla af veðmötum á fasteignum og fyritækjum. Einnig í fjármálum heimilanna og í rekstri fyrirtækja. Leigumiðlun fasteigna, íbúða og atvinnuhúsnæðis. 

FRÓN fasteignamiðlun

Háaleitisbraut 109, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
14. des. 2018
48.100.000 kr.
59.900.000 kr.
225.1 m²
266.104 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

FRÓN fasteignamiðlun

Háaleitisbraut 109, 108 Reykjavík
phone