Lýsing
Samkvæmt birtum fm frá Þjóðskrá er íbúðin 75,4 og aukaherbergi í kjallara er 9,7 fm og með aðgengi að sameiginlegu baðherbergi með sturtu. Samtals 85,1 fm. Skv. eignaskiptayfirlýsingu fylgir eigninni 6,2 fm geymsla í kjallara (merkt 1b á teikningu) sem er ekki inni í birtum fm frá HMS þ.a raunstærð er 91,3 fm. Garður er sameiginlegur og bílastæði eru fyrir framan húsið.
Lóðin er afar snyrtileg. Tyrfð baklóð og malbikuð bílastæði fyrir framan húsið.
Nánari upplýsingar má fá hjá fasteigansala. Halldór Freyr Sveinbjörnsson - 6932916 - halldor@fastgardur.is
Nánari lýsing:
Hol er með flísum á gólfi og parketi.
Stofa er rúmgóð og björt með parketi á gólfi og er útgengt á sólríkar suðursvalir.
Eldhús er með parketi á gólfi og ljósri innréttingu. Helluborð, bakaraofn og vifta.
Hjónaherbergi er rúmgott og með parketi á gólfi og góðum skápum.
Svefnherbergi er parketi á gólfi og skáp.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og á hluta veggja. Sturtuklefi, innrétting og er mögulegt að tengja fyrir þvottavél.
Herbergi í kjallara: Er 9,7 fermetrar að stærð með glugga til norðurs og plastparketi á gólfi. Herbergið hefur aðgengi að sameiginlegu baðherbergi og hefur verið í útleigu áður.
Geymsla er 6,2 fm en er ekki inni í birtum fm frá Þjóðskrá.
Sameiginlegt baðherbergi í kjallara: Með flísar á gólfi og á veggjum. Sturta, vaskur og salerni.
Í sameign er hjólageymsla og sameiginlegt þvottahús þ.s hver íbúð hefur sína þvottavél. Bílastæði eru merkt íbúðum en er ekki þinglýst á eignirnar.
Staðsetning eignarinnar er á fjölskylduvænum og eftirsóknaverðum stað í Kópavogi. Um er að ræða afar veðursælan stað í næsta nágrenni við Fossvogsdalinn með alla sína útivistarmöguleika. Stutt er í Snælandsskóla, Álfhólsskóla, leikskóla og íþróttasvæði.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður