Lýsing
Sjarmerandi og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð í hjarta gamla Vesturbæjarins á annarri hæð í 3ja hæða fjölbýlishúsi með sameiginlegum inngangi. Eignin sameinar klassískan Vesturbæjarsjarma og nútímaleg þægindi á einstaklega eftirsóttum stað.
Upplýsingar um eign og bókun á skoðun:
Erla Friðriksdóttir lögg.fasteignasali s. 896 6160 eða erla@landmark.is
Inngangur: Sameiginlegur.
Eldhús: Endurnýjað 2022 með fallegri innréttingu og góðu vinnuplássi. Innbyggður ísskápur, vínskápur og uppþvottavél. Gólf parketlagt og einangrað. Gengið út á svalir sem settar voru 2024 og snúa til suðurs.
Herbergi I: Rúmgott svefnherbergi með skápum og gólfborðum.
Herbergi II: Inn af stofu er herbergi með gólfborðum, sem hentar vel sem barnaherbergi, skrifstofa eða gestaherbergi.
Stofa: Er með hlýlegu yfirbragði og gólfborðum. Nýlega var enduropnað fyrir hornglugga í stofunni sem gefur rýminu aukna birtu og meiri sjarma.
Baðherbergi: Baðkar, innrétting og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Aukarými: Á fyrstu hæð fylgir sérgeymsla sem hefur verið nýtt sem vinnuherbergi. Gólfið er flotað og loft einangrað, útveggir ekki einangraðir. Einnig er sameiginlegt þvottahús í húsin. Sér óskráð 2 fm geymsla undir stiga í sameign.
Viðhald og endurbætur:
Samkvæmt upplýsingum frá eigendum var skipt um hitalagnir árið 2018. Tenglar hafa verið endurnýjaðir og ofnar að hluta. Ástand frárennslislagna var kannað árið 2002 og aftur haustið 2025 og engar athugasemdir gerðar. Ástand glugga og þaks var kannað haustið 2025. Engar framkvæmdir eru fyrirhugaðar á húsinu.
Á síðustu misserum (2025-2026) hefur farið fram umfangsmikið viðhald og endurbætur á húsinu að utan.
Helstu framkvæmdir:
- Sprunguviðgerðir á steypu og múr
- Viðgerðir á ryðskemmdum
- Fínhúðun/slípun á útveggjum
- Háþrýstiþvottur á útveggjum
- Málun á útveggjum hússins
- Málun á gluggum, körmum og listum
- Viðhald og málun á þaki
- Viðgerðir á þakjárni
- Viðhald og málun á skorsteinum
- Blikksmíði og uppsetning blikkhatta
- Endurnýjun á gleri og glerlistum á völdum gluggum
- Uppsetning snjóstoppara á þaki
- Ýmis smíðaviðhald og timburviðgerðir
Öldugata er í hjarta gamla Vesturbæjarins, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, kaffihús, verslanir og falleg útivistarsvæði við sjóinn. Einstaklega eftirsótt staðsetning þar sem borgarlíf og rólegt hverfisumhverfi fara saman.
Eignaskiptasamningur:
02-01 72,3m² íbúð á 2. hæð ásamt hlutdeild í sameign hússins og þvottahúsi, 8,7m² geymslu og hlutdeild í sameign eininga 01-01-01 og 01-02-01 = 33,58%
Nýr eignaskiptasamningur fyrir húsið er í vinnslu.
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat