Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Brekkugata 38 íbúð 201

600 Akureyri

92.700.000 kr.

869.606 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2286270

Fasteignamat

74.450.000 kr.

Brunabótamat

68.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2006
svg
106,6 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Brekkugata 38 íbúð 201 - Björt og falleg 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýlishúsi með lyftu, geymslu á 1. hæð og stæði í bílageymslu - Stærð 106,6 m², þarf af er geymslan 6,6 m²

Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi með þvottaaðstöðu, tvö svefnherbergi og sér geymslu.

Forstofa er með flísum á gólfi og spónlögðum eikarskáp.
Stofa og eldhús eru í opnu og björtu rými með flísum á gólfi.
Í eldhúsi eru flísar á gólfi og góð spónlögð eikar innrétting með ljósri bekkplötu. Siemens ofn og helluborð og stæði fyrir uppþvottavél, ísskáp og frystiskáp. Úr eldhúsi er útgengt út á flísalagðar, yfirbyggðar svalir með svalalokunarkerfi, skráð 11,3 m² sem telur ekki inn í fermetra eignar.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og stærstum hluta veggja. Þar er ljós innrétting, upphengt wc og sturta. Inni á baðherbergi er einnig þvottaaðstaða, ljós innrétting með skolvask, tengi fyrir þvottavél og mjög gott skápapláss.
Svefnherbergin tvö eru rúmgóð, bæði flísalögð með góðum spónlögðum eikar skápum.
Sér geymsla er á fyrstu hæð, skráð 6,6 m².

Annað 
- Stæði í bílageymslu fylgir eigninni.
- Gólfhiti er í íbúðinni
- Góð staðsetning, stutt í miðbæinn og Glerártorg.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

 

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone