Lýsing
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 93,9fm.
Nánari lýsing:
Forstofa með fataskáp og flísum á gólfi.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu rými með flísum á gólfi. Snyrtileg eldhúsinnrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, bakarofn í vinnuhæð. Frá rýminu er útgengt á verönd á framhlið hússins með steyptum skjólveggjum.
Hjónaherbergi með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Innrétting, upphengt salerni og sturta. Frá baðherbergi er útgengt út í bakgarð hússins.
Þvottahús með góðri innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og flísar á gólfi. Útgengt er út í bakgarð hússins úr þvottahúsinu.
Geymsla með flísum á gólfi.
Lóð er frágengin, bílaplan og stétt er hellulögð með snjóbræðslu. Steyptir skjólveggir fyrir framan og aftan húsið.
Allar nánari upplýsingar veita Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.