Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ólafur Björnsson
Vista
hæð

Tjarnargata 4

260 Reykjanesbær

60.000.000 kr.

599.401 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2094140

Fasteignamat

51.050.000 kr.

Brunabótamat

47.100.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1963
svg
100,1 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 28. maí 2026 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Tjarnargata 4, 260 Reykjanesbær. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 28. maí 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Lýsing

LÓB fasteignir kynnir eignina Tjarnargata 4, 260 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 209-4140 ásamt öllu því sem eigninni fylgir og fylgja ber, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Tjarnargata 4 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 209-4140, birt stærð 100.1 fm.

Búið er að endurnýja töluvert í eigninni en árið 2018 fóru fyrri eigendur í nokkuð miklar endurbætur á húsinu bæði að innan og utan. Samkvæmt þeim upplýsingum sem seljandi býr yfir varðandi þær framkvæmdir voru:
Að innan: Ný gólfefni, hurðar, skápar og innréttingar. Eldhús og baðherbergi voru að fullu endurgerð á einstaklega smekklegan hátt. Eignin var verið sandspörsluð og máluð. Rafmagnstafla ný og dregið hefur verið nýjar rafmagslagnir í alla íbúðina og skipt var um alla rofa og tengla. Ný led ljós bæði að innan og utan. Að sögn seljanda var skipt um neysluvatslögn í öllu húsinu sem og ofna.
Að utan: Gluggar og gler eru ný að hluta. Öll niðurföll eru ný og að sögn seljanda voru skólplagnir nýjar. Þak er nýlegt. Nýjar flasningar á þaki og er þakkantur nýr að hluta. Húsið er allt nýmálað að utan og allt tréverk lagfært og málað. Að sögn seljanda hefur dren verið tekið í gegn.

Á bilinu 2024-2025 var farið í sprunguviðgerðir utan á húsinu og sprautað kvoðu til að stoppa leka sem var að koma að utan frá. Skipt var um tvo þrýstijafnara fyrir ofnakerfið.

Samkomulag er á milli þinglýstra eigenda að sólpallur, gróðurhús í garði og bílastæði við sólpall fylgi íbúð 201 en bílastæði á vesturhlið hússins tilheyrir íbúð 101. Þá er samkomulag um að garður frá gróðurhúsi að eldhúsglugga eða frá Suðurhlið að austurhlið, tilheyri einnig íbúð 101 en annað tilheyri íbúð 201.

Við ákveðna vindátt hefur lekið inn meðfram hurð tvisvar sinnum, en einungis í mjög miklum vind. Blöndunartæki í sturtu er bilað/stíflað. Það lekur smá á milli sturtuglers og flísa í sturtu.
Eignin er laus til afhendingar 1. júní 2026.

Nánari upplýsingar veitir Kristófer Ari Te Maiharoa Lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 6956134, tölvupóstur kristo@olafur.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 55.000 + vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.

Nánari upplýsingar veita Kristófer Ari Te Maiharoa, lögfræðingur og löggilltur fasteignasali kristo@olafur.is s: 416-2223, gsm: 695 6134 eða Ólafur Björnsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali oli@olafur.is - s: 416 2220 - gsm: 894 3209 

Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar

Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar

Eyrarvegi 15, 800 Selfoss
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
4. mar. 2021
27.850.000 kr.
33.250.000 kr.
100.1 m²
332.168 kr.
18. jan. 2019
23.800.000 kr.
33.000.000 kr.
100.1 m²
329.670 kr.
11. sep. 2017
15.000.000 kr.
32.000.000 kr.
220.7 m²
144.993 kr.
1. jún. 2016
14.100.000 kr.
267.801.000 kr.
1983.7 m²
135.001 kr.
19. okt. 2006
10.740.000 kr.
15.700.000 kr.
100.1 m²
156.843 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar

Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar

Eyrarvegi 15, 800 Selfoss
phone