Opið hús: Klapparhlíð 32, 270 Mosfellsbær, Íbúð merkt: 01 03 04. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 26. maí 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.
Lýsing
Heimili Fasteignasala og Anna Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu sérlega bjarta og vel skipulagða 4ra herbergja endaíbúð á 3. hæð í viðhaldsléttu fjölbýli á vinsælum og eftirsóttum stað í Mosfellsbæ nánar tiltekið Klapparhlíð 32. Eignin er skráð 99,9 fm að stærð og skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, bjarta og fallega stofa með útgengi út á rúmgóðar svalir, mikið útsýni, fallegt eldhús í opnu rými við stofu. Flísalagt baðherbergi með þvottahúsi innaf. Þá fylgir eigninni sérgeymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Stór og snyrtileg lóð og næg bílastæði eru við húsið. Falleg og vel staðsett íbúð í barnvænu hverfi. Í göngufæri er skóli, leikskóli, sundlaug og líkamsrækt þar sem börn þurfa ekki að fara yfir umferðargötu.
Allar frekari upplýsingar veitir Anna Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali, sími 898-2017 *** Bókið skoðun hjá as@heimili.is ***
Nánari lýsing:
Sérinngangur er inn í íbúðina sem er endaíbúð á 3. hæð. Gengið er inn í bjarta forstofu með glugga, flísar úr náttúrusteini á gólfi og fatahengi. Bjartur parketlagður gangur sem opnast inn í rúmgott opið alrými með stórum gluggum og skiptist í samliggjandi stofu/borðstofu og eldhús. Upprunaleg viðarlituð innrétting í eldhúsi, bakarofn á vegg og mikið skápapláss. Útgengi úr stofu á stórar suður svalir með stórkostlegu útsýni til suðurs og vesturs. Fallegt baðherbergi með ljósum flísum, nýlegri innréttingu og baðkari með sturtu. Sér þvottahús er inn af baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Hjónaherbergi með miklu skápaplássi og tvö barnaherbergi með nýlegum skápum. Parket á gólfum. Í sameign hússins er sérgeymsla íbúðar og sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Sjón er sögu ríkari!
Eignin er sérlega vel staðsett þar sem stutt er í Lágafellslaug og íþróttahús. Lágafellsskóli og leikskólarnir Hulduberg og Höfðaberg eru í göngufjarlægð. Einn skemmtilegasti golfvöllur landsins Hlíðavöllur er í hverfinu og margar skemmtilegar gönguleiðir
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.