Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1967
68,4 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Þvottahús
Opið hús: 18. maí 2026
kl. 17:00
til 17:30
Lýsing
Kjöreign fasteignasala kynnir: Fellsmúli 14, rúmgóð og björt 2ja herbergja íbúð á 3 hæð með stórum suðursvölum. Íbúðin skiptist í anddyri, svefnherbergi, baðherbergi, stofu og eldhús. Sameiginlegt þvottahús í sameign (tengi fyrir sér þvottavél) og sér geymsla.
Nánari lýsing: Komið er inn í rúmgott anddyri (hægt að hafa skrifstofuaðstöðu). Gott svefnherbergi með fataskáp. Baðherbergi með baðkari og hvítri innréttingu. Mjög rúmgott alrými með stofu og opið inn í eldhús. Ný eldhúsinnrétting og tæki. Gengið er út á stórar suðursvalir frá stofu. Birt stærð íbúðar er 68,4 fm og er geymsla þar af 4.4 fm.
Geymsla - fylgir eigninni í kjallara og er um 4,4 fm.
Þvottahús og hjólageymslur - er sameiginlegt í kjallara með öðrum íbúðum. Myndavéladyrasími.
Nýlegar endurbætur:
2026 Sett ný eldhúsinnrétting ásamt öllum heimlistækjum, nýjum vaski og blöndunartækjum.
2025 - Skipt um þakpappa á húsinu.
2023-2025 - Endurnýjun/lagfæring hluta glugga, tréverk glugga málað.
Þetta er eftirsótt staðsetning þar sem íbúðin er staðsett miðsvæðis og stutt er í allar helstu þjónustur. Góð bílastæði eru við húsið og stór garður á baklóð. Hleðslustöðvar á bílaplani fyrir framan húsið. Sameignin er snyrtileg og vel umgengin.
Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar ehf. í síma 533-4040 eða kjoreign@kjoreign.is.
Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 asta@kjoreign.is
Dan Wiium hdl., og lögg. fasteignasali gsm. 896-4013 dan@kjoreign.is
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. nóv. 2023
43.200.000 kr.
47.000.000 kr.
68.4 m²
687.135 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026