Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Böðvar Þ. Eggertsson
Upplýsingar
svg
Byggt 1974
svg
272,5 m²
svg
8 herb.
svg
3 baðherb.
svg
6 svefnh.
svg
Sérinngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Bílastæði

Lýsing

Miklaborg kynnir: Fallegt stílhreint einbýlishús á tveimur hæðum með bílskúr. Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni. Möguleiki á sér þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi. Stór og gróinn garður. Hellulögð aðkoma að húsi að framan og hellulögð stétt í bakgarði til vesturs. Húsið hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar frá upphafi.

Viðjugerði 2, 108 Reykjavík er glæsilegt 272,5 fm einbýlishús á tveimur hæðum með bílskúr. Húsið sem stendur á 877 fm hornlóð á frábærum stað miðsvæðis í Reykjavík. Eignin skiptist í 237,5 fm íbúðarrými og 35 fm bílskúr.


Nánari upplýsingar veitir Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is

Nánari lýsing
Efri hæð. Gengið upp stiga með stórum björtum gluggum.

Hol/gangur: Tengir öll rými efri hæðar saman. Teppi á gólfum.

Stofa /borðstofa: Stofur eru samliggjandi og mynda saman opið rými. Nýlegt parket á gólfum, gluggar til suðurs og vesturs. Fallegur hlaðinn arinn.

Sólskáli á svölum: Fallegur opnanlegur glerskáli til suðurs með flísum á gólfi.

Eldhús: Er mjög rúmgott með plastparket á gólfi og viðareldhúsinnréttingu. Rúmgóður borðkrókur. Gluggar til suðurs og austurs.

Búr/þvottahús: Innaf eldhúsi. Dúkur á gólfi, hillur og gluggi með opnanlegu fagi.

Svefnherbergi I: Með parketi á gólfi, góðum skápum yfir heilan vegg og glugga til vesturs. Úr herbergi er gengið á svalir til vesturs.

Svefnherbergi II og III: Með skápum, teppi og parketi á gólfi og gluggum til austurs.

Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar, sturtuklefi og viðarinnréttingu við vask og glugga til austurs.


Neðri hæð.

Forstofa: Með flísum á gólfi og fataskáp.

Forstofuherbergi: Með teppi á gólfi og glugga til austurs.

Gestasalerni: Flísalagt með salerni og handlaug.

Þvottaherbergi: Málað gólf með hillum, skáp, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, vask og gluggi til vesturs.

Þriggja herbergja íbúð. Samanstendur af tveimur svefnherbergjum, stofu, eldhúsi og baðherbergi. Sér inngangur er í íbúðina og einnig innangengt í gegnum þvottaherbergi. Býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, hvort sem er fyrir fjölskyldu, gesti eða útleigu.

Bílskúr: Rúmgóður 35 fm bílskúr með gluggum í vestur og norður ásamt bakhurð.


Staðsetning og nærumhverfi:

Eignin er staðsett á afar vinsælum og fjölskylduvænum stað miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í leikskóla, skóla, verslanir og alla helstu þjónustu. Rólegt og gróið hverfi með góðum samgöngum og stuttri fjarlægð í útivist og miðborgina.

img
Kjartan Ísak Guðmundsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Miklaborg fasteignasala
Lágmúli 4, 108 Reykjavík
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík
img

Kjartan Ísak Guðmundsson

Lágmúli 4, 108 Reykjavík
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík

Kjartan Ísak Guðmundsson

Lágmúli 4, 108 Reykjavík