Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Smárahlíð 7d

603 Akureyri

48.500.000 kr.

604.738 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2150536

Fasteignamat

43.950.000 kr.

Brunabótamat

41.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1978
svg
80,2 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 19. maí 2026 kl. 16:15 til 17:00

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600 

Smárahlíð 7d - Björt 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsi í Glerárhverfi - Stærð 80,2 m²

Eignin skiptist í forstofu/gang, baðherbergi, stofu, eldhús, búr/geymslu, tvö svefnherbergi ásamt sér geymslu í kjallara.

Forstofa/gangur er með harðparketi á gólfi og opnu fatahengi.
Á baðherbergi er dúkur á gólfi, vegghillur, wc og sturtuklefi. Þar er einnig bekkur með skolvask, auk þess sem tengi er fyrir þvottavél.
Stofa er björt og rúmgóð með harðparketi á gólfi.
Í eldhúsi er harðparket á gólfi og upprunaleg innrétting með flísum á milli skápa. Þar er borðkrókur, auk þess sem hægt er að ganga út á steypta vestur verönd.
Búr/geymsla er inn af eldhúsi. Þar er dúkur á gólfi og vegghillur.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með harðparketi á gólfi og í öðru þeirra er fataskápur.
Sér geymsla í kjallara er með lökkuðu gólfi og vegghillum.

Annað
- Í sameign í kjallara má finna hjóla- og vagnageymslu, auk þvottaherbergis.
- Snyrtileg sameign, gólfteppi endurnýjað 2024 og sameignin máluð að innan 2020.
- Húsið var málað að utan 2015. 
- Mynddyrasími.
- Í grennd við skóla og leikskóla sem og íþróttasvæði Þórs.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi eignar er dánarbú og þ.a.l. getur seljandi ekki uppfyllt upplýsinga skyldu sína samkvæmt lögum 40/2002 um almennt ástand og ábyrgðaryfirlýsingu eignar. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone