Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sveinbjörn Halldórsson
Halldór Freyr Sveinbjörnsson
Díana Arnfjörð
Hulda Ósk Baldvinsdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1956
svg
186,9 m²
svg
6 herb.
svg
3 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

Fasteignasalan Garður 

Í einkasölu stórglæsilegt 186,9 fm einbýli auk 15 fm frístandandi bjálkahúss sem er nýtt sem fjölskyldulíkamsrækt. Eignin er mikið til nýlega standsett.
Skipting eignar:
Efri-hæð: Inngangur, og forstofa, sjónvarpsherbergi, stofa, eldhús, borðstofa og baðherbergi. Gengt er frá stofu út á svalir og þaðan niður í stórglæsilegan garð.
Neðri-hæð: Inngangur og forstofa, hol, þvottaherbergi, 3 svefnherbergi og baðherbergi.
Garður: Geymsla, tvær einstaklings íbúðir og líkamsrækt.


Nánari lýsing
Efri hæð. Á forstofu, sjónvarpsherbergi, stofu og eldhúsi er parket. Eldhúsið er opið við stofuna, í því er hvít nýleg innrétting með eyju. Borðkrókur er rúmgóður.  Flísalagt Baðherbergi með sturtu.
Neðri hæð. Í forstofunni eru flísar á gólfi, þurrkofn og skápar fyrir fatnað. Þvottaherbergið er með flísum á gólfi, innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara og góðu skáparými. Flísalagt baðherbergið og í því er bæði baðkar og sturta. Þrjú rúmgóð svefnherbergi með fataskápum, parket er á herbergjum.  Forstofa á neðri hæð er ekki inn í heildar fermetrum eignarinnar. 
Garðurinn
Garðurinn er nýlega standsettur og heill heimur út af fyrir sig, mjög glæsilegur með hita í stéttum, palli við bjálkahús sem er nýtt sem fjölskyldulíkamsrækt og heitum potti. Bjálkahúsið er upphitað og með salerni. Gert er ráð fyrir útisturtu. Á lóðinni stendur 50 fm bílskúr sem er innréttaður sem 2ja herbergja íbúð. Baðherbergið er með sturtu og flísalagt í hólf og gólf. Á svefnherbergi, stofu og eldhúsi er parket. Í öðru hluta bílskúrsins er svefnherbergi með sérinngangi og parketi á gólfum. Þar er baðherbergi með sturtu, flísalagt í hólf og gólf. Fremst í bílskúrnum er geymsla.

Eignin er öll nýlega standsett. Rafmagn endurnýjað, sett upp ný rafmagnstafla og skipt um tengla. Pípulagnir endurnýjaðar og settur gólfhiti í allt húsið auk ofna í baðherbergi og forstofu á neðri hæð. Skólp- endurnýjað, auk þess sem skipt var um skólplagnir frá húsi út í götu. Baðherbergi standsett. Þvottaherbergi standsett.  Eldhús standsett. Öll gólfefni endurnýjuð. Skipt var um alla glugga og hurðar. Skipt var um pappa og járn á þaki. Bílskúrinn er nýbyggður og lóðin öll standsett með upphitaðri hellulögn, pöllum og skjólgirðingum.

Nánari upplýsingar veitir:
Leifur Aðalsteinsson löggiltur fasteignasali
Sími 662-3999
leifur@fastgardur.is
 


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Fasteignasalan Garður

Fasteignasalan Garður

Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. des. 2022
81.250.000 kr.
72.000.000 kr.
136.9 m²
525.931 kr.
13. apr. 2022
65.100.000 kr.
72.000.000 kr.
136.9 m²
525.931 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan Garður

Fasteignasalan Garður

Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður