Lýsing
Eignin skiptist í forstofugang, eldhús, tvö svefnherbergi, stofu/borðstofu og baðherbergi, auk tveggja herbergja á jarðhæð í séreign, sameignar og bílskúrs.
Íbúðin á 1. hæð er skráð 71,1 m², séreign á jarðhæð er skráð sem geymsla nr. 00-01, 10,2 m² og geymsla nr. 00-03, 16,7 m² samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu. Bílskúr er 24,5 m² og er heildarstærð eignarinnar því 124,2 m².
Húsið hefur verið töluvert endurnýjað að utan, meðal annars með nýjum gluggum og nýrri klæðningu og einangrun, að austurhlið undanskilinni.
Nánari lýsing:
Sameiginlegur inngangur er með efri hæð hússins og teppalagður stigagangur. Komið er inn í forstofugang með fatahengi og parketi á gólfi.
Rúmgóð og björt stofa og borðstofa með harðparketi á gólfi og útgengi út á svalir. Fallegt útsýni yfir bæinn og út fjörðinn.
Eldhús er með eldri lakkaðri innréttingu, eldavél og uppþvottavél, parketi á gólfi og góðu skápaplássi.
Hjónaherbergi er rúmgott með harðparketi á gólfi og stórum fataskáp.
Barnaherbergi er minna, með parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með sturtuklefa og innréttingu.
Á jarðhæð eru tvö herbergi í séreign sem búið er að innrétta sem svefnherbergi. Þar er parket á gólfum og gólfhiti.
Einnig er sameiginlegt þvottahús og salerni á jarðhæð ásamt útgengi út í garð og að bílskúr.
Bílskúrinn er byggður árið 1976 og er 24,5 m² að stærð. Bílskúrshurð með rafmagnsopnun, steypt og málað gólf og rafmagnshiti.
Sameiginlegur garður er við húsið.
Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is
Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.