Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Jason Kristinn Ólafsson
Sverrir Pálmason
Vista
fjölbýlishús

Orkureiturinn A 609

108 Reykjavík

135.000.000 kr.

1.197.870 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2529915

Fasteignamat

93.450.000 kr.

Brunabótamat

63.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2024
svg
112,7 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
Opið hús: 30. maí 2026 kl. 12:00 til 13:00

Erum staðsett í sýningaríbúð á 4. hæð, frítt í bílakjjalara. - verið velkomin kl. 12:00 laugardaginn 30. maí. Jason s. 7751515

Lýsing

Jason Kristinn s. 7751515 á Betri Stofunni og Safír byggingar ehf kynna með stolti Orkureitinn. A-hús. Dalsmúli 3 - Íbúð á 6. hæð. Glæsileg 112,7 fm 3 herbergja endaíbúð. Stofa með útgengi út á stórar þaksvalir með heitum potti. Svíta með sérbaðherbergi og sömuleiðis útgengi út á 42,1 fm þaksvalir sem snúa í suður og vestur. Baðherbergi með sturtu. Sérþvottahús. Auka svefnherbergi. Sérgeymsla 7,5 fm í kjallara. Íbúðin er tilbúin til afhendingar og afhendist fullbúin með viðarparketi. 

Heimasíða Orkureitsins

Nánari lýsing: 
Komið inní anddyri með fataskápum.
Eldhúsið er með stein á borðplötum. Glæsileg innrétting frá GKS. Vönduð eldhústæki.
Alrými tengir saman eldhús og stofu og er með útgengi út á rúmgóðar þaksvalir sem snúa til suðurs.
Hjónasvíta með fataskápum og sér baðherbergi. Tæplega 20 fm.
Herbergi II er með fataskáp. 9,4 fm.
Baðherbergi með sturtu. 
Gólfsíðir gluggar og gólfhit ásamt loftskiptakerfi gefa aukin gæði. 
Sérgeymsla er 7,5 fm.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla.

Nánar um Orkureitinn:  Bjartar og vel hannaðar íbúðir
Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði. Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús. 

Hver íbúð er útbúin loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Kerfið endurvinnur varma upp að 85%, nýtir varma úr útsogslofti og hitar ferskt loft sem dælt er inn. Allt loft sem fer í gegnum kerfið er síað og er því minna af svifryki og frjókornum í íbúðunum en ella. Hægt er að stýra kerfinu á bæði einfaldan máta á vegg eða með appi í snjallsíma.

Hönnun: Rut Kára innanhússarkitekt stýrir fágaðri hönnun innréttinga íbúða ásamt því að leggja línuna fyrir öll sameiginleg rými svo úr verður heildarmynd byggingar sem er engu lík. Rut Kára hefur lag á því að skapa heim sem við viljum búa í.

Framtíðarheimili á Orkureitnum
Orkureiturinn er skipulagður og hannaður með sjálfbærni og vistvæn sjónarmið að leiðarljósi. Sérstök áhersla er lögð á endurnýtingu orku og blágrænar ofanvatnslausnir. Á byggingartíma er lögð áhersla á endurvinnslu byggingarefnis, jarðvegs og gróðurs á svæðinu. Skipulag reitsins er það fyrsta í Reykjavík sem vottað er af BREEAM Communities vistvottunarkerfinu og hefur það fengið næsthæstu einkunn, sem er „Excellent“. Jafnframt er stefnt að því að allar íbúðir á reitnum verði Svansvottaðar.

Allt hverfið í kringum Orkureitinn er í mikilli uppbyggingu. Staðsetningin er í miðju verslunar- og þjónustukjarna í Skeifunni, Glæsibæ og Múlunum, svæði sem er miðsvæðis í þróunarás Reykjavíkurborgar við væntanlega Borgarlínu.

Nánari upplýsingar veita sérfræðingar: 
Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1515 - tölvupóstur: jason@betristofan.is
Guðbjörg Guðmundsdóttir , í síma 899-5533, tölvupóstur gudbjorg@betristofan.is.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

img
Jason Kristinn Ólafsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Betri Stofan Fasteignasala
Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
img

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík